þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að ég nenni ekki að spila þennan leik.. eða allavegana góð ástæða, alltaf einhverjir skussar að hacka.. Ég bara sé ekki tilganginn með því að vera góður í einhverju með svindli.. menn eru bara að svindla á sjálfum sér og ég bara næ ekki tilgangnum
Krissi ég er ekki frá því að þú þurfir að leita þér hjálpar… þvílíkur tappi þarna á ferð, ekkert smá kjafturinn á þér… Þú ert svona gaur sem ferð á huga í þeim eina tilgangi að vera með eithvað bögg í fólkinu hérna… þú segir strax: “breytir engu fokkans máli þarna og ALLS ENGU SPILAÐU BARA MEÐ EINHVERN CONFIG ÞROSKASTAHEFTA TÍK”………… Má gaurinn ekki spurja þessara spurningar… það bað þig enginn um að svara, var þessi spurning eithvað fyrir þér? og þurftir þú líka að svara henni og það á svona...
Æji mér finnst þetta alltaf jafn findið þegar menn eru að spurja útí þennan blessaða skjálfta.. Því að ef að skjálfti verður aftur þá skal ég alveg hengja mig uppá það að hann verður auglýstur með góðum fyrirvara.. Varla fara þeir með þetta leynt og svo mætir enginn á skjálfta. Semsagt ef skjálfti verður þá verður það pottþétt tilkynnt!! ekki nema í svona 1000000000 skipti sem fólk spyr hvenær næsti skjálfti er eða eithvað álíka
Mér finnst best þegar gaurar með svona 1-8 í score eru að kalla einhverja hackera, þeir kunna varla á cs og halda að þeir séu í aðstöðu til að kalla menn hackera… En það er orðið svo mikið um hack í dag að þetta er alveg að verða vonlaust.. Persónulega er ég alveg hættur að nenna að spila þennan leik og eru þessir hackerar á public alveg góð ástæða fyrir því… Alltaf gaman að vera á public og kannski vera með fínt score, svo koma nokkrir hackerar og allt fer í rugl.
Zombie var og mun alltaf verða besti cs spilari íslands. Ekkert flóknara en það… Hann getur tekið sér 5 mánaða pásu og komið aftur og rúllað yfir alla á klakanum það er bara þannig.
já spike segir þú sem ert í seven… já það er mikið að marka. Ef Zombie og blibb verða saman í .is þá eigiði ekki séns ég meina spike who og romim who þegar maður er að tala um Zombie og Blibb, þeir tæku þetta 2 gegn 5 ekki spurning
lezark- ég sé ekkert athugavert við það að clön séu að auglýsa sig hérna að þau séu að byrja, til að fá smá idle á rásina sína, líka getur verið skemmtilegt að sjá roster hjá clönum. Þú hefðir ekki commentað á þetta ef þetta hefði verið Drake að koma með comeback og þeir hefðu sagt rosterinn.
ég hef brotið 5 fartölvur, 15 mýs, 5 skápa, 3 hellur, 2 glugga, 5 skjí, 5 lyklaborð, beyglað 16 músamottur og 2 sinnum hennt tölvunni útum gluggan og ég er b.t.w. á 6 hæð. Annars er ég bara rólegur sko
Ég vann afa minn í skák í dag, æji bara vera með í að monnta mig. Vá þessi korkur er alveg bíó hjá þér Goater hehe, vá ég vann cs leik best að setja það á netið hehehe gj til lukku með það, gangi ykkur vel í framtíðinni og vonandi að maður fái fleiri korka hjá þér, jafnvel að þú hafði verið efstir á maniunni eða eithvað álíka interesting
Vá hvað þetta er að verða þreytt umræðuefni, ef cs deyr þá deyr hann, ef hann deyr ekki þá deyr hann ekki. flott mál, þurfum ekkert að gera 50 korka um sama hlutinn. Tíminn mun leiða þetta í ljós, ekki einhverjir tilgangslausir korkar. Ekki eins og einhver hér sé bara með dagsetninguna á því hvenær hann deyr út.
CS video eru mesta tímasóun sem ég veit um, í fyrst lagi að dl þessu og svo að horfa á þetta…. Ég bara sé ekki “fúttið” við að sjá aðra spila þennan leik og drepa. En eflaust margir ósammála mér. Ég kýs frekar að kíkka af og til á public í stað þess að eyða mínum dýrmæta tíma í svona tímasóun. Skítköst leyfð enda er ég maður sem tek skítköstum, mitt álit er mitt álit sama hvað þið segið um það.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..