Árið 1939 kom upp hugmynd um alnota léttfarartæki fyrir bandaríska herinn, en þagnað til höfðu mótorhjól með hliðarvagni verið notuð sem slík, ásamt breyttum T-Fordum, en með frekar lélegum árangri. Var þá sendur út listi með tíu kröfum sem þeir gerðu til framtíðar léttfarartækis, til 135 bílaframleiðenda og þurfti að skila inn frumgerð innan einungis 49 daga. Þær voru: 1. „Farartækið verður að geta borið 600 pund (272,73 kg).“ 2. „Hjólabilið verður að vera minna en 75 tommur (190,5 cm).“ 3....