Again, point taken. Óþarfi að skella ræðunni aftur, var búin að segja að ég skildi þetta :) En með Meyer/Twilight = of satt. Fýla góðan Twilight-hater. Also, lol on “dollurnar”.
Point taken. En hey, draumórar geta nú alveg verið ágætir, allavega svo lengi sem þeir fara ekki út í eitthvað mjög ýkt. Og það að fýla bara þessa og þessa týpu finnst mér frekar ýkt, per say. Og ég sagði ekki að þeir væru hluti af áhugamálinu. Ég sagði að þeir væru hluti af rómantík. Maður getur nú alveg haft svona rómantíska draumóra/dagdrauma sem (ef maður er einhleypur) er hinn fullkomni maki í augum viðkomanda. Ekkert endilega eitthvað klámfengið, bara svona fantasíur sem viðkomandi...
Sagðir reyndar að þeir væru tilgangslausir, en whatever. Skil hvað þú meinar. En really, er ekki einhverjir svona draumórar einmitt partur af rómantík? Sem þetta forum nú heitir? Kannski ekki alveg svona draumórar, en svona þannig lagað.
Greyið. Ég geri ráð fyrir að þú fallir inn í hvorugan “hópinn”? En svona seriously er þetta alveg svo til rétt hjá þér með fordómana, en eins og ég sagði á þræðinum sem þú ert svo augljóslega að vísa til, þá eiga allar stelpur sér einhvern draumagæja sem er fullkominn í þeirra augum. Málið er bara að hann- er- ekki- til. Þess vegna er gaman að deila svona hlutum. Eða kannski er það bara ég. Ég veit ekkert. Enda rauðhaus :( Stelpur eru fokking ómerkilegt hyski, amirite?
Tja, allar stelpur eiga sinn draumastrák sem er ekki til í raunveruleikanum (einfaldlega af því hann er fullkominn). Minn er nokkurn veginn svona. Kurteis og krúttlegur eru allavega lýsingarorð sem ég kysi meðal annars að nota til að lýsa honum xD En svona án þess að fara út fyrir efnið, þá neinei, þú ert ekkert ein um það. Fýla miklu frekar hógværð og þannig heldur en einhverja svona stæla.
Tíhí, afi… Neinei, svona seriously, þá er þetta bara fínasta grein. Kannski ekki kafað allt of mikið í lögin, en hey, ég held að það hafi verið það sem þú varst að sækjast eftir. Stutt og vel lesanlegt :)
Haha vaaaaaaá. Átti augljóslega að vera viskusteinninn! xDD Maður á ekki að vera að gera svona lista þegar maður er þreyttur og veikur… Bætt við 25. júlí 2009 - 00:10 Í öðru sæti, það er að segja.
Þar sem það er orðið frekar langt síðan ég las bækurnar er ég frekar ryðguð í þeim málum. En reyni samt: Bækurnar: 1. Fönixreglan 2. Blendingsprinsinn 3. Dauðadjásnin 4. Eldbikarinn 5.-6. Fanginn frá Azkaban & Leyniklefinn 7. Viskusteinninn Myndirnar: 1. Leyniklefinn 2-3. Eldbikarinn & Blendingsprinsinn 4. Eldbikarinn 5. Fönixreglan 6. Fanginn frá Azkaban
Þakka þér fyrir ^^ Og já, það er svona hintið af því af hverju hann var svo drepinn. Hún var svo upptekin, greyið, að hún var ekkert að hlusta á hann. Gerði ein stærstu mistök ever…
Ætla að vitna í hana þarna Birgittu Jóns eða hvað hún nú heitir: “Ég er búin að fá nóg. Þetta er svo mikið kjaftæði, að mér er bara illt.” Þoli ekki þessa forgangsröðun hjá þessari BLESSUÐU ríkisstjórn. Meina, skítt með íbúa landsins sem eru að verða blankir og fyrirtæki sem eru að fara á hausinn! Það þarf að huga að því sem VIRKILEGA skiptir máli! Eins og aðildaviðræður við ESB! 8D FFFFFFFUUUUUUU-
Sko, málið er að Robert Pattinson (sem lék Cedric í fjórðu myndinni) tók svo að sér hlutverkið sem Edward Cullen í Twilight-myndunum. Þar sem Cedric dó og Edward er vampíra (undead), er hægt að segja að Eddi sé Cedric vakinn upp, eða eitthvað þannig. Hef allavega séð einhverjar umræður um þetta. Allt hitt eru í rauninni bara svona skot á karakterinn Edward og hvernig honum er lýst og hvernig hann er túlkaður af Pattinson =P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..