Ég skrifa þessa grein beint inn á Huga því ég hef ekki tíma til að bíða eftir að Word opnist, tölvan mín er svo hæg. Ég vissi eiginlega ekki hvað ég ætti að setja söguna mína undir þannig að hún fer bara undir smásagna flokkinn, þó það sé aldrei hægt að skilgreina neitt til hins ítrasta. En ég hef eiginlega ekki tíma í fleiri málalengingar þannig að ég byrja strax að segja það sem ég ætla að segja. Svo að ég byrji alveg á byrjuninni þá tók fæðingin mín ekki langan tíma, mamma mín fékk...