„Alda skall á skútunni og lagði hana á hliðina“ „Það skall alda á skútunni og lagði hana á hliðina, og við það brotnaði mastrið,“ sagði Adam Lalich þegar hann steig út úr þyrlu Landhelgisgæslunnar í Reykjavík, en honum var í morgun bjargað af skútu sinni sem stödd var um 90 mílur norðvestur af Straumsnesi við Ísafjarðardjúp. Lalich, sem er Bandaríkjamaður á fimmtugsaldri, og eigandi skútunnar sagði að skoskur félagi sinn hafi farið fyrir borð um miðnætti og síðan hafi ekkert til hans spurst....