Það er reyndar ekki alveg rétt. Frekar myndi ég taka grunnverð tengingarinnar og draga það frá verðinu + 4 gígabit. Síðan myndi ég deila í þann pening með því magni sem maður niðurhalar. Mér finnst það hálf kjánalegt að segja að þetta sé ókeypis ef maður borgar fyrir 4 gígabit auka. Ég er svo sem ekkert á móti þessu fyrirkomulagi heldur finnst mér bara undarlegt hvað fólk er til í að eyða miklu til að spara.