Það á að sparka innkaupastjóra erlends efnis á Skjá Einum, ekki Jay Leno. Tek undir með ykkur með Starter Wife, E!, Sport kids og sérstaklega Survivor.
Nei hann heitir ekki Gulli og við fengum gítarinn fyrir löööngu síðan frá frænda mínum sem heitir heldur ekki Gulli. Gæti verið að frændi minn hafi fengið hann frá honum, hver veit.
Hann pabbi á gamlann Aria Pro II gítar sem að sagan segir að Fróði heitinn úr Sororicide hafi átt, sel það þó ekki dýrara en ég keypti það. Annars er sá gítar alls ekki sem verstur.
Killer markvörður, er algjörlega að bjarga mér með Southampton í úrvalsdeildinni. Liðið var ekki svipur hjá sjón þegar hann tók þátt í Afríku keppninni.
Ég vil benda mönnum á að þetta átti aldrei að vera fyndið eða vel teiknað, ég gerði þetta á 10 mínútum til þess að gagnrýna flóð ömurlegra teiknimyndasagna sem hingað berast. Svona til að benda mönnum á að vanda sig og hugsa upp góðan djók áður en þeir kvelja saklausa menn eins og mig með ömurlegum teiknimyndasögum.
Þú ert augljóslega ekki allveg í sambandi vinurinn. Þú greinileg veist ekki mikið um þessi mál enda er fangelsisvist á Íslandi ekki hugsuð til þess að refsa mönnum heldur til að bæta þá, kannastu við orðið betrunarvist?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..