ég held það sé engin ástæða til að lifa fyrir að leita að kærasta, þegar það gerist, þá gerist það og það er frábært. Ég gleymi því aldrei þegar vinkona mín spurði mig þegar við vorum í 9/10.bekk (líf hennar snýst að flestu leyti um kærastann sinn) hvort mig langaði ekki í kærasta eða hvort ég væri lesbía… Ætli það hafi ekki verið léttir fyrir hana þegar ég var með fyrsta kærastanum. Allavega, Life's what happens to you while you're busy making other plans :)