Eina sem ég vil bæta við það sem aðrir eru búnir að nefna er að ég var alltaf dauðþreyttur á meðan ég var með einkennin áður en ég fór til læknis, gat ekki sest niður án þess að sofna…
nei, mac eru tölvur.. OS er stýrikerfið, rétt eins og pc eru tölvur og þar er Windows stýrikerfið, reyndu að kynna þér málefnið eitthvað áður en þú ferð með staðreyndir á netinu
haha já, þetta er þröng innkeyrsla og tillitsami nágranninn okkar leggur alltaf bílunum sínum (stórum vinnujeppum) beint á móti sem þrengir plássið meira og ég byrjaði að beygja upp í götuna of fljótt og horfði ekki á þegar framendinn fór í einhverja steinhleðslu.
Í fyrsta lagi þá veit ég það bæði sem dómari og sem leikmaður (markmaður) að það er ekki flutað fyrr en markmaðurinn er alveg kominn með hann. ÍHÍ borgar ekki laun dómara í íslnesku deildinni, það er heimaliðið sem útvegar dómara og sér þessvegna um að greyða launin þeirra.
Ef aðaldómarinn hefði séð að markmaðurinn hefði verið með pökkinn hefði hann flautað, þar sem hann sá að markmaðurinn hafði ekki pökkinn flautaði hann ekki og þetta endaði með marki. Mig minnir að ég hafi fengið eitthvað um 4.000 kr. borgaðar fyrir að vera línudómari í þessum leik ef þér líður eitthvað betur með að vita það. En ég legg til að þú fáir einhvern til að lesa yfir það sem þú ætlar að skirfa hérna því það er nánast ómögulegt að skilja þig almennilega.
Ég var línudómari í þessum leik og það var ég sem dæmdi mark, ég horfði á pökkinn allan tímann og Einar var ekki með höndina yfir pekkinum. Þetta er ekki flóknara en það.
Línudómarinn dæmdi markið þegar markamður SA á samkvæmt þér að hafa skorað en hann var bara ekki með hendina á pekkinum heldur beint við hliðina á honum. Aðaldómarinn dæmdi það mark eftir að hafa rætt við línudómarann sem sá þetta mun betur. Varðandi þetta tripping þá fannst mér þetta ekki vera neitt vegna þess að varnarmaðurinn var búinn að fara í pökkinn áður en hann og sóknarmaðurinn duttu saman. Þegar Bjössi fór í boxið var þetta of margir á ísnum refsing og þar sem SR voru búnir að hafa...
þú ert þá líklega að tala um svona markmannsgrímur er það ekki? http://www.yalesinger.com/-%20New%20Folder%20(2)/tbp1.jpg ég myndi bara tékka á ebay sko :/
Litli frændi minn er mjög mikið einhverfur (getur ekki lært að tala og verður 4ra ára í vor) og styrkurinn sem foreldrar hans fá frá ríkinu eru alls ekki miklir, varla teljandi ef útí það er farið.
Já sem þú hefur tekið. Það þýðir ekki að allir aðrir sem geti þetta ekki séu aumingjar. Sumir eiga önnur áhugamál en tölvuna þannig að það er ekki hægt að eyða öllum sínum tíma í henni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..