Alls ekki gaman að lenda í svona veseni, það fer ekki á milli mála. Mig langar bara að koma með nokkra punkta. Þegar fólk hættir saman getur það farið á svo marga vegu, stundum vill maður ekki missa manneskjuna sem vin, hvort maður er sá sem sparkar manneskjunni eða sá sem er sparkað, stundum finnst manni þetta vera bein árás og vill vita hvað maður gerði vitlaust. En ég hef alltaf haldið því fram að ef maður er í lagi í kollinum þá heldur maður vinskap við þá sem maður hefur verið mest með,...