Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Japaninn Shige (7 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 1 mánuði
Allir þeir sem hafa áhuga á tattúum hafa séð verk eftir listamanninn Shige enda hefur hann prýtt síður flestra tattúblaða og heimasíðna veraldarvefsins. Handbragð hans er löngu orðið goðsagnarkennt og horfa margir húðflúrarar á hann öfundaraugum. Hver er þó maðurinn? Shige heitir réttu nafni Shigenori Iwasaki og er fæddur í Hiroshima borg í Japan í mars árið 1970. Hann byrjaði að kenna sjálfum sér listina að húðflúra árið 1995 en þá starfaði hann sem vélaverkfræðingur hjá umboði Harley...

Ferðasaga frá Gothenburg Tattoo expo. (18 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 1 mánuði
Sælt veri fólkið. Dagana 28. - 30. mars var haldin húðflúrkeppnin Tattooexpo í Gautaborg í nágrannalandi okkar Svíþjóð. Keppnin er skipulögð af hjónakornunum Búddha og Petru sem eru ötulir húðflúráhugamenn. Þau halda reglulega keppnir og sýningar í Svíaríki og kappkosta að fá nafntogaða flúrara. Öllu var til tjaldað í þetta skiptið og var aðstaða Eriksbergshallen til fyrirmyndar. Keppt var í fjölmörgum flokkum og haldnar sýningar í öllu mögulegu og ómögulegu. Flaggskip sýningarinnar var án...

Tattúið mitt í vinnslu (68 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Halló allir. Þessa dagana erum við Búri að vinna í tattúi á bringunni á mér. Ég hef lengi ætlað að fá mér chestpiece á karlmannsbúbburnar mínar og loksins lét ég slag standa. Þar sem dóttir mín heitir Ugla þá langaði mig að fá mér Uglu í litum sem næst hjartanu. Eftir að hafa talað saman um hvað ég vildi gera stakk Búri upp á því að ég kæmi með honum til Gautaborgar í Svíþjóð á tattúráðstefnu. Hún verður haldin í mars og vildum við að sjálfsögðu klára sem mest hérna heima áður en við færum...

Stílbrigði listamanna á Íslandi? (15 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Ég hef lengi velt fyrir mér einu. Út í hinum stóra heimi kappkosta listamenn að því að mynda sér einhverskonar sérstöðu í senunni. Það gera þeir með mismunandi stílbrigðum og reyna að blanda sínu “tödsi” inn í með það að leiðarljósi að skera sig úr. Hvernig finnst ykkur þetta vera á Íslandi? Er einhver listamaður á Íslandi með einhverja sérstöðu miðað við hina? Einhver sem hefur tamið sér einn stíl fram yfir aðra og ber því af í þeim stíl? Ef svo er hver þá og hvaða stíl? Er senan okkar það...

-Húðflúrssagan mín- (19 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Já kæru vinir mér finnst sérdeilis prýðilegt að lesa sögur annarra um þeirra reynslu af tattúum. Hér með ætla ég að fara ítarlega yfir feril minn sem húðflúraáhugamaður sem slagar í tæp 12 ár. Ég á það til að tala tæpitungulaust en vonandi hefur einhver gaman af þessu. Njótið vel! - Sumarið 1995 gekk ég 13 ára inn á ART-tattoo stofuna á Ingólfsstræti. Hana rak gamla brýnið og goðsögn í lifanda lífi, Helgi tattoo. Ég hafði heyrt svæsnar sögur af honum og hans neyslu en við mér blasti...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok