Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hróarskeldumiði til sölu á skidt og ingen ting (kúk og kanil)... (0 álit)

í Rokk fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Halló allir, ég verð að selja miðann minn á Hróarskeldu og það strax. Ég keypti lengri miðann sem gildir frá sunnudegi til sunnudags. Hann kostaði mig tæpan 15.000 kall en ég er tilbúinn að láta hann á lítið…. Ef þið hafið áhuga hringið þá í mig í síma: 690-8155!!! Takk Takk

Grafarþögn! (0 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Undanfarin ár hafa bækurnar hans Arnaldar Indiðasonar verið á náttborðinu hjá mér um jólin. Ég hreinlega steinlá fyrir Napóleóns-skjölunum og ekki fannst mér Mýrin verri. En núna var ég að ljúka lestrinum á nýjustu bókinni Grafarþögn og ég var fyrir miklum vonbrigðum!! Hún er vel skrifuð og allt það en spennan er ekki eins og í hinum. Ég átti erfitt með að halda mig frá þeim fyrri og las fram á rauða nótt en fann alls ekki fyrir því í þessarri. Er einhver reyfarafíkill sammála mér í þessu???
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok