Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Tigurinn
Tigurinn Notandi síðan fyrir 20 árum, 2 mánuðum 48 stig

Ólæstur iPhone frá Ítalíu til sölu (5 álit)

í Farsímar fyrir 14 árum, 8 mánuðum
Er með til sölu mjög vel farin iPhone 3G frá Ítalíu (þar með löglega aflæstur). Með umbúðum, hleðslutæki og usb-snúru. Innan við árs gamall og lítur út eins og nýr. Verð 90.000 kr. kjartan@hive.is

Veit einhver hvað gerðist hér?? (13 álit)

í Flug fyrir 19 árum
http://www.kvikmynd.is/myndband.asp?id=1419 Stórfurðulegt…

Er ég að verða eitthvað geðveikur??? (3 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég sá tilboð frá Elko í dag, þar sem þeir auglýsa Pink Panther safnið (bíómyndirnar, ekki teiknimyndirnar) á krónur 3.995.- ALLAR MYNDIRNAR (http://www.elko.is/item.php?idcat=20&idsubcategory=158&idItem=1800) stendur með stórum stöfum fyrir aftan… Ég var ánægður með þetta tilboð og fjárfesti í einum slíkum pakka. En þegar að á hólminn er komið, kemur í ljós að aðeins 5 af 6 myndum eru í pakkanum… Í pakkan frá þeim vantar myndina The Return of the Pink Panther. Ég fór að kanna málið aðeins...

DVD + Bók (1 álit)

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Sælir Hugarar - Nú fer senn að líða að jólum, og hef ég ákveðið að vera svolítið tímanlega í því ár, svo að ég lendi ekki í stressi á Þorláksmessukvöld við gjafainnkaup. Þannig er nú mál með vexti, að hann pabbi minn er mikill áhugamaður um Sagnfræði. Helst hefur hann áhuga á WWII og Íslandi. Það er að segja þeim þáttum WWII, sem tengdust Íslandi hvað helst, t.d. Sjóorrustur á N-Atlantshafi. Mig langar til að finna einhverja fallega og góða bók, á ensku eða íslensku, og eina góða...

Vél niðri á Reykjavíkurflugvelli... (5 álit)

í Flug fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ég rak augun í vél sem var niðri á Reykjavíkuflugvelli í morgun sem að virtist eitthvað öfug. Þ.e.a.s. að skrúfurnar vísuðu aftur en ekki fram eins og maður er vanur. Þekkir einhver þessa vél?? Hvaða týpa er þetta?? Skráningarnúmerið hennar var: F-GZPA

Innflutningur frá USA (4 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Daginn - Ég hef verið að pæla svolítið í því að flytja inn Ford F-150 frá USA og hef notað innflutningsreiknivélina á BmwKrafti svolítið við að leita að þeim eina rétta [www.bmwkraftur.com/innflutningur]. Er einhver hérna sem hefur staðið í innflutningi á bíl til Íslands frá USA, því að mig langaði svolítið að forvitnast um það hvernig maður ber sig að við að afskrá bílinn í USA. En sérstaklega vantar mig að vita það hvað það kostar uþb. að flytja bílinn til Íslands, þ.e.a.s. hver er...

Paypal (14 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Er einhver hérna sem hefur notað PayPal mikið og veit hvort að þetta sé traust dæmi?? ÉG hfe stofnað aðgang, en veit ekki alveg hvernig ég millifæri upphæð inn á minn reikning svo að ég geti sent það öðrum úti í heimi, t.d. ef ég ætla að kaupa eitthvað á Ebay…. Er einhver hérna sem kann eitthvað á þetta, þá væri frábært ef hann gæti gefið mér einhverjar upplýsingarum um þetta hérna, eða sent með PErsonal Message…:D

Havin' a little problem... (2 álit)

í Windows fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þannig er mál með vexti að Internet Explorer á það til að frjósa hjá mér svona á klukkutíma fresti, sem er skiljanlega alveg óþolandi. Meinið lýsir sér þannig að tölvan fer að vinna alveg ógurlega hægt, svo hægt að það tekur allt að 2 mínútum fyrir Task Manager að opna sig ef maður ætlar að loka IE. Því næst opnar hún svona litla blöðru í vinstra horninu þar sem hún segir að “Virtual Memory is running low”. Ef ég lít í Task Managerinn, þá eru alltaf tvö forrit sem er eru að nota um og yfir...

Stórar vefsíður (7 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Góðan daginn - Frænka mín og frændi reka nokkrar verslanir hérna á Íslandi og hafa lengi verið að pæla í því að koma sé upp vefsíðu til að kynna vörurnar sem þau hafa á boðstólunum. Þau heyrðu af því að ég hafi verið að leika mér í heimasíðugerð fyrir nokkru síðan og leituðu ráða hjá mér. Þannig er hins vegar mál með vexti að ég hef lítið fiktað við þetta undanfarin 2-3 ár og því er ég ekki alveg í takti við það sem er að gerast í þessum málum í dag. Mér var bent á að setja upp síðu með...

Ég þarf ykkar hjálp til að ná vorprófunum (3 álit)

í Windows fyrir 20 árum, 1 mánuði
Sælir - Nú er komið að þessu árlegu vorprófum. Það er hins vegar eitt sem að ég verð að gera við tölvuna mína til þess að það sé nokkur möguleiki á að ég nái þessum prófum. Ég þarf að uninstalla öllu sem gerir mér kleift að spila Flash og aðra slíka leiki á netinu. Er einhver hérna sem getur gefið mér upplýsingar um hverju ég þarfa að uninstalla og hvernig ég fer að því… Kveðja, Tigurinn

Kvikmyndagerð á millistríðsárunum (1 álit)

í Sagnfræði fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Góða kvöldið - Ég er að vinna að ritgerð sem fjalla um kvikmyndagerð á árunum milli stríða. Ég finn hins vegar ekkert voðalega mikið af heimildum um þetta efni. Aðallega vantar mig að fá upplýsingar um t.d. tækjabúnað sem notaður var á þessum tíma. Ef það er einhver sem getur bent mér á eitthvað, þá væri það mjög vel þegið. Kv. Tígurinn

Saga Ástralíu (6 álit)

í Sagnfræði fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Góðan daginn - Ég er að mjög yfirgripsmikið verkefni um Ástralíu. Verkefnið nær allt frá því að fjalla um sögu landsins til þess að fjalla um do's and dont's á viðskiptafundum í Ástralíu. Rétt í þessu, þá var ég að ljúka við kaflann um sögu Ástralíu, og í Word eru þetta rúmar 7 blaðsíður með 1,5 földu línubili. Ef að það eru einhverjir sem hafa áhuga á að lesa þetta þá verður það hægt hér að neðan, svo framarlega sem að greinin sé samþykkt. Ég er ekki viss hvernig menn stundi þennan hluta...

Vísað í latínu... (1 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Góðan daginn - Margir hafa eflaust tekið eftir því að í kennslubókum á íslensku er oft vísað yfir í enska heitið á orðinu. Dæmi: Guðmundur keypi sér hús (e. house). Þetta er að sjálfsögðu mikil einföldun…en þið ættuð að vita um hvað ég á við. Er einhver hérna sem veit hvernig ég vísa yfir í latínu á texta sem er á ensku??? Er það bara (l. Orð), eða hvað?? Öll hjálp væri mikið þegin… Kv. Tígurinn
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok