Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Serendip
Serendip Notandi frá fornöld 638 stig

Hamingjan í bleikum kjól (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hamingjan situr heima í stofu og sötrar kók, gluggar í blöðin og gefur mér hýrt augu - af og til, í bleikum kjól og brosir út í annað. Fer svo ljómandi vel við þennan stól. Og verði hún hér ennþá á morgunn og hinn, veit ég fyrir víst - að hún er hvorki frá Hong Kong né Singapúr - heldur alveg ekta.

Stjörnublik (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
dimmar nætur, kaldir skuggar dvöldu árum saman í sálarkytru suður í reykjavík vonarglætur, gamlir draumar, létu lítið fyrir sér fara í gleymdum skúmaskotum en svo komst þú færðir mér stjörnublik í sængina mína gafst mér bros með morgunmatnum sem dugir daglangt

Brot (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Augun skima - flóttaleg. Kvíðin. Hrædd. Eins og hún viti ekki hvað verður næst. Pilsið stutt. Blússan blá. Eiginlega lagleg kona. Meðfram múrnum - sex metra háum - gengur hröðum skrefum. Ákveðin. Hverfur undir hliðið áletrað stórum stöfum. Strangeways High Security Prison. - - - - - - - “Hér búa aðeins illir menn,” segir konan við hlið mér, “bara þessir allra verstu.”

Nútímamaður (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hann var kallaður rasisti, næstum því fasisti, hafði alltaf sagt það opinskátt sem aðrir hugsuðu í hljóði. Núna er hann eiginlega main stream einskonar miðju moðari.

Flogin burt (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Haustið kom og kallaði hana burt hana - sem fóstrar þín tuttugu ára tár, hjarta móður og margsungin gleðibros. Um annað gólf hún gengur nú galsafengin sjálfsagt - eins og áður, en fjalirnar þínar - fella saknaðartár. Rammi lífs þíns hangir nú á öðrum vegg. Myndin af þér, rifin og dálítið tætt, veit ekki lengur hvar hún á heima.

Andlit í bláum glugga (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Andlit í bláum glugga heilsar mér á morgnana og kveður á kvöldin. Handan götunnar, hangandi upp á vegg, horfir þögult á mig og alla hina. Andlit í bláum skugga, einsemdina boðar úr litlum glugga.

Þú (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
stundum – ertu Etna eða Katla í sprengigosi - þegar þú ert hamslaus þess á milli - ertu eins og stöðuvatn - stórt og mikið - á heitum sumardegi sólin glitrar í gárunum bakkinn gróinn grænum skógi í loftinu liggur angandi ilman laufsins og vatnið er djúpt veit að þar býr margt undir niðri

Minningar (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Legsteinar álútir í löngum óreglulegum röðum, letraðir minningum margra alda. Máðir sumir, aðrir nýlega meitlaðir, marka bústaði liðinna manna. Hér hvíla konur og karlar og börn, heilu fjölskyldurnar, svo nánar saman, friðsælar undir hvolfþaki blómstrandi kirsuberjatrjánna. Svartþröstur situr á grein syngur mjúkri röddu, sönginn mildan og blíðan. Mansöng, ekki sálm.

Ljóð vikunnar ..... (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Datt í hug að koma með smá ábendingu til önnum kafna stjórnenda Huga, úr því að ljóð vikunnar (frábært framtak, þökk sé því) eru orðin svona mörg ….. færi betur á því að raða þeim í öfuga tímaröð, þannig að þau nýjustu verði efst á listanum. Svo var það nú pælingin sem Solufegri var með um daginn, hvort velja ætti alltaf ljóð eftir einhvern sem ekki hefði verið valinn áður. Mín skoðun er sú að auðvitað á að velja besta ljóðið alveg burt séð frá því hver hefur ort það ….. finnst hálfkjánalegt...

Humarhalar (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Hvítir, næstum glansandi, liggja svo naktir til þerris Hvernig skyldi þeim líða, skelflettum og fótalausum ? Kaldir, nýkomnir úr frysti. Hlýtur að vera heimilislegt, svo kalt í sjónum. Pota, velti, klíp og kreisti. Ekki eitt hljóð, ekki stuna, finnið ekki neitt, auðvitað, vantar á ykkur höfuðið. Vesælir núna, bráðum að súpu. Bragðgóðir.

Sveppir .... þýtt (Sylvia Plath) (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Hvað finnst Huga um þýðingar ? Veit að hér er gert ráð fyrir eigin ljóðum, sjálfum finnst mér góð þýðing fela í sér að yrkja það upp á nýtt, annars hverfur andi og blær ljóðsin …… læt alla vega eina flakka, “Sveppir” eftir Sylviu Plath, eitt uppáhaldsskáld mitt: Á einni nóttu, afar hvítlega, varlega afar hljóðlega. Tær okkar, nasir okkar hertaka moldina, eignast loftið. Enginn sér okkur stöðvar okkur, svíkur okkur. Sandkornin víkja úr vegi. Mjúkir hnefar heimta að hefja upp barrið...

Skoðanaskipti (6 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Skipti um skoðun í dag! Sú gamla fór mér ekki lengur. Orðin hálftuskuleg og hentaði hreint ekki í þessu veðri, enda ræfilsleg og tætt og löngu komin úr tísku. Sú nýja - næstum feimnislega fín - venst henni bráðum.

Ómur liðins tíma (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 8 mánuðum
þú varst á þessum sama stað - eina löngu liðna stund - sé þig enn – brosið, augun blíð - mynd þína, ofin þráðum minninga tengdar þessum steinum finn þig enn – ylinn, vangann ljúfa - feimnislega vefjast fingur, á þessu sama borði heyri þig enn – röddina, orðin þýð - sögð, í sálu mína letruð, undir þessum sama himni

Við torgið (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Við torgið standa turnar og hús, hafa séð margt og muna mikið. Legg við hlustir, heyri ekki orðaskil, en skynja þungan nið þögulla orða.

bros þitt (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 8 mánuðum
bros þitt sem flögrandi fiðrildi í regnbogalit flögraði inn í hjarta mitt

Fortíðarheimsókn (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Fortíðin kom í heimsókn, frek að vanda, framtíðinni vísaði á dyr, umsvifalaust og nútíðin, í felulitum, upp til fóta og handa, tók að beygja sig og bugta, möglunarlaust, eins og sönnum gestgjafa sæmir.

Orð í reiði (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Hamrað úr hörðum kvíða, hégóma hlaðið, bryddað eitri afprýði, öfundar. Brenglaður sannleikur að lygi orðinn. Af afli óttans laust, áður rökfestum bundið, úr skynseminnar básum skotið. Hittir sál í hjartastað, helsár veitir.

ÞOR (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þorir þú - að hengja hugsanir þínar til þerris á snúru í allra augsýn. Láta viðrast í vindinum, fyllast ferskri angan.

Söknuður (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ástin mín, í morgunn fór ég frá þér, kvaddi þig með kossi og sagði sjáumst, ekki á morgunn heldur hinn. Nú sit ég í framandi borg og hugsa til þín, um brosið blíða og glettin augu, hlusta á rödd þína í huganum óma. Ég sakna þín.

Kvikmynd á rúðu (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Regnið bylur á rúðunni með stanslausum err hljóðum. Droparnir leika við ljósið úr fjarskanum Fanga það. Hugfanginn horfi á doppótt og rákótt útsýnið renna letilega niður glerið.

Andvaka (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Undir luktum augum: Lævísar læðast myrkar hugsanir dulbúnar sem speki. Hringsóla um lendur hugans. Í heljargreipum skynseminni halda fast. Dómgreind og rökvísi undan hrekjast. Drunginn einn ræður. Hugarró og eirðin horfin í myrkrið. Í dagrenningu draugarnir loksins líða burt aðeins dauf endurminningin eftir.

Svona lítið veist þú (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þú hvæstir eins og hreysiköttur. Varð svo hrædd við þig. Og þú vissir ekki að ég var hrædd við þig. Svona lítið veist þú. /// viðurkenni það strax að síðasta línan er stolin úr frábæru ljóði eftir nínu björk, en hitt á ég …

Spegilmynd (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Fann lítið blóm sem bar speglandi daggardropa sem leit speglandi daggardropa sem sat í litlu blómi inni í mér.

Þankabrot um tímann (7 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Tíminn er aðeins endalaus röð augnablika, sem líða hjá hvert af öðru. Lítil veröld greipt í hvert og eitt - handa þér. …… Tíminn er líkt og tár sem falla, tala heit og sölt um gleði og sorgir. Á einu augabragði verða til og hverfa, minningin ein verður eftir. …… Tíminn er gjöf guðs til mannanna. Lifandi sál í kviku holdi, - sólundaðu ekki gjöf þinni. …… Tíminn er gjöf guðs til mannanna - en skyldi hann ekki óska þess að hafa gefið hana einhverjum öðrum.

Bræðurnir (5 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Enn eruð þið mættir báðir tveir, bræðurnir ótti og kvíði. Komið í hvert sinn sem ég vil hleypa inn ofurlítilli hamingju sem bankar á dyrnar. Hangið í pilsfaldi hennar hvert sem hún fer. Hlustið hvað ég segi, þið eruð ekki velkomnir. Farið burt, komið ekki aftur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok