Ekki taka hnébeygjuna í Smith, þessi þráðbeina upp og niður hreyfing er mjög ónáttúruleg og slæm fyrir líkamann. Fáðu einhvern til að kenna þér “klassísku” hnébeygjuna, æfðu þig heima (með kúst t.d.) og notaðu bara stöngina í nokkrar vikur. Þegar þú ert kominn upp á lagið með tæknina geturðu farið að hlaða á þig lóðum. Kveðja