Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Mjolnir2504
Mjolnir2504 Notandi síðan fyrir 16 árum, 1 mánuði 234 stig
Áhugamál: Stjórnmál, Dulspeki, Deiglan
.

Ítalía 2011 (0 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 13 árum, 3 mánuðum
Gleðifréttir fyrir Eurovision aðdáendur! Ítalía mun taka þátt í ESC 2011! (vona að ég sé ekki sá síðasti með fréttirnar) http://en.wikipedia.org/wiki/Italy_in_the_Eurovision_Song_Contest

Hve lengi skín sólin? (14 álit)

í Tilveran fyrir 13 árum, 4 mánuðum
Góðan dag og gleðilegt nýtt ár. Vitið þið um einhverja síðu þar sem hægt er að sjá sirka hvenær fer að birta og hvenær dimmir á daginn (að meðaltali viku til viku eða eitthvað í þá áttina), nú þegar dag fer að lengja? Kær kveðja,

Hjálp við dæmi (8 álit)

í Skóli fyrir 13 árum, 7 mánuðum
Sælir hugarar. Mig langar að biðja um hjálp við tveimur dæmum sem ég á í basli við. Ég veit að stjórnendur eru ekki hrifnir af þessu og margir hugarar vilja að þetta sé bannað. Það er því allt í lagi mín vegna ef þessu verður hent út :). Fyrra dæmið er svona: x + x/3 = 8 Það er erfitt að ná fram öllum stærðfræði táknum, en í tilviki x/3 er x fyrir ofan strik og 3 fyrir neðan. Seinna dæmið er svo: x/2 + x/3 = 10 Táknin eru aftur frekar asnaleg. Þakkir fyrir lesturinn :)

Áfengisneysla. (11 álit)

í Tilveran fyrir 13 árum, 9 mánuðum
Daginn, Ég vil fá eitt á hreint (sem ég hef heyrt ansi oft talað um): er foreldrum heimilt að kaupa áfengi fyrir börn sín sem eru 15 ára og eldri?

Fagurbókmenntir (3 álit)

í Bækur fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Getur einhver sagt mér hvað fagurbókmenntir eru? Ég reyndi að googla en finn enga lýsingu.

Dauði Borgarahreyfingarinnar - Þjóðarinnar á Þing (6 álit)

í Deiglan fyrir 14 árum, 8 mánuðum
Förum yfir atburðarás síðustu daga og vikna: 16. júlí: Borgarahreyfingin klofnar. Þrír greiða atkvæði gegn ESB-umsókn til að reyna að koma í veg fyrir Icesave-ábyrgðina. Sá fjórði (Þráinn) segir já og segir samhreyfingarmenn sína hafa svikið stefnu hreyfingarinnar og vill að þeir segi af sér (hvað varð um það að þingmenn séu samkvæmir eigin samfæringu?) 6. ágúst: Haldinn er félagsfundur í hreyfingunni, enginn þingmaður mætir og skipuð er sáttanefnd til að sætta þingmenn. Þingmennirnir þrír...

Skyldmenni lava-lampans (7 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Góðan daginn, Veit einhver hvað glerkúlan sem í er lítill “staur” sem nær umþb upp að helmingi kúlunnar og á honum er lítil kúla sem lýsir frá sér rafstraumum í glerið? Maður sér þetta stundum á heimilum en oft stórar svona á sýningum. Þeir sem hafa lava-lampa ættu að vita hvað þetta er enda á svipuðum slóðum. Kv,

Klassaræða Þórs Saari (7 álit)

í Deiglan fyrir 14 árum, 10 mánuðum
http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?raeda=rad20090618T185213&horfa=1 Horfið á alla ræðuna - það viturlegasta sem ég hef heyrt frá Alþingi nýlega.

Vann Jóhanna forkeppnina (8 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Sáuði kastljósið áðan? Spænska söngkonan Soraya Arnelas sagði að Jóhanna hefði verið efst í sínum riðli. Veit þessi Soraya Arnelas eitthvað meira en við? Ef svo er veit það á gott. Annars spái ég okkur ca. 5 sæti í forkeppninni og ca. 10 á laugardaginn

SVÍNAFLENSA! (7 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum
http://www.swinefighter.com/ Þarna er lausnin komin!

Hvernig ég vil hafa stjórnlagaþingið. (14 álit)

í Stjórnmál fyrir 15 árum
Hlutverk stjórnlagaþingsins: Að endurskoða eða skrifa nýja stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands. Afhverju?: Stjórnarskráin er að miklu leiti sama plaggið og Kristján IX setti einhliða árið 1874 vegna mikils eldmóðs íslensku þjóðarinnar fyrir lýðræði og sjálfstæði. Helstu breytingar frá 1874 eru að nú er komið þingræði í hana, lýðveldi og nýr mannréttindakafli. Hún er barn síns tíma og nokkuð úrelt að mínu mati. Hvernig ég vil að stjórnlagþingi verði komið í gagnið: Hvernig á að kjósa á það? Á...

Björk Sveinsson Björnsson (7 álit)

í Sagnfræði fyrir 15 árum
http://is.wikipedia.org/wiki/Björn_Sv._Björnsson Afhverju hef ég aldrei heyrt um þetta áður? Það hefur nú ekki verið gott að vera forseti og eiga son sem var í SS-sveitum nasista? Hefur einhver hérna heyrt um þetta áður? Bætt við 13. apríl 2009 - 15:36 Og Björk á að vera Björk, bara svo að það sé á hreinu.

Mitt álit á Sjálfstæðisflokknum (0 álit)

í Forsíða (gamla) fyrir 15 árum
Allir hafa sitt skoðannafrelsi en þetta er mín skoðun: Sjálfstæðisflokkurinn er spilltasta og viðbjóðslegasta stjórnmálaafl Íslands og þótt víðar væri leitað. Flokkurinn heldur Alþingi í gíslingu með eitt mál sem þeir eru ekki sammála hinum þingflokkunum um í staðinn fyrir að afgreiða það mál og ræða bráðavanda fyrirtækja og heimila þessa lands. Þeir óttast stjórnlagaþingið sem allir flokkar styðja vegna þess að þá fara völdin frá flokkunum yfir til þjóðarinnar. Þeir láta nú eins og ekkert...

Nafn á ríkisstjórn vora (5 álit)

í Deiglan fyrir 15 árum
Rauðka?

Á að banna vændi með öllu? (0 álit)

í Deiglan fyrir 15 árum, 1 mánuði

Auddi haflar klámmynd (2 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 1 mánuði
http://www.dv.is/frettir/2009/3/13/auddi-hafnar-klammynd/ Ég bara spyr, hvar get ég nálgast vídejóið?

Nýr Alþýðuflokkur (7 álit)

í Deiglan fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Er ekki bara kominn tími á nýjan jafnaðarmannaflokk?

Algebra (9 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Þarf smá algebru-hjálp því kennarinn minn er ekki sá skásti. Hvernig sérmaður út hvaða merki (+/-) koma í svörum dæmi: (x-4)2 Svar: x2-8x+16 Hvernig ráðast merkin?

Samfylkinguna burt! - Framsókn og Frjálslynda inn! (24 álit)

í Deiglan fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Nú er svo komið í íslensku þjóðfélagi að það þolir ekki lengri setu Samfylkingarinnar í ríkisstjórn. Engin samstaða er í ríkisstjórninni út af Samfylkingunni vegna gaspurs um kosningar og innbyrðis gagnrýni og almennu afturhaldi í mikilvægri ákvörðunartöku!! Sjálfstæðisflokknum ber nú að slýta þessu dauðadæmda “samstarfi” og ganga til samstarfs við Framsóknarflokkinn og Frjálslynda flokkinn. Í raun hefði átt að gera það strax eftir kosningar 2007 að fá Frjálslynda inn í farsælt samstarf...

PS2 (1 álit)

í Leikjatölvur fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Er hægt að tengja flakkara eða utan á liggjandi harðan disk við PS2?

Ef að íslensk stjórnmál væru Lion Ling (109 álit)

í Deiglan fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Davíð=Skari Geir=Eddi Ingibjörg=Sarabía Jón Baldvin=Múfasa Steingrímur=Simbi Hvað fleira?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok