Þegar ég skrifaði greinina mundi ég bara ekki meira um leikinn. Það er smá tími síðan ég fór í hann og þetta var allt sem ég mundi. En svo fór ég í hann í dag og maður getur t.d. líka byggt kirkju, pöbb, resturant, rafmagnsorkuver o.fl. Og eitt það skemmtilegasta í leiknum gerist strax í byrjun. Þá á maður nefnilega að skapa persónuna sína, segja hvernig þú komst til valda á eyjuni, hverjir veik og styrkleikar þínir eru ofl. Ég vona að þetta gefi þér betri mynd af leiknum. Maria KR.