Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Kristbjorn
Kristbjorn Notandi frá fornöld 49 ára karlmaður
338 stig
Áhugamál: Bækur, Deiglan, Flug

Íslandsmeistaramót í Vélflugi - Flugrallý (4 álit)

í Flug fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Núna á næstunni fer fram Íslandsmeistaramótið í vélflugi, sem samanstendur af flugrallý og lendingarkeppni. Þetta mót er fyir alla íslenska einkaflugmenn, hvort sem þeir fljúga mikið eða lítið. Ottó Tynes er potturinn og pannan í að skipuleggja þetta mót, og hefur hann mikla reynslu af þvi að skipuleggja leiðir og halda utan um svona apparat. Nú eru tilbúnar leiðir, kort, planblöð, myndir og allt annað sem til þarf, nema hvað eitthvað skortir á þáttökuna. Þetta mót er frábært tækifæri til að...

Samgönguáætlun á Alþingi, kjaftshögg á einkaflugið (32 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Sælir Nú er verið að ræða samgönguáætlun á Alþingi. Það er gott að setja þessi mál í fast horf, og sú áætlun sem þeir hafa verið að talaum hefur verið ágæt, með 61 skilgreindum flugvelli og áætlanir um endurbygginug á pýramídum og lagfæringar á malarvöllum (þó ekki fyrr en 2007-2008). Stærsta atriðið var þó að áætlaðar voru 277 milljónir í æfingarflugvöll í nágrenni Reykjvíkur. Nú á milli umræðna skýtur samgöngunefnd inn breytingartillögu dauðans frá Flugráði: Á 88. fundi flugráðs var...

Aðalfundur FÍE 2002 (18 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Miðvikudaginn 11. desember 2002 var aðalfundur FÍE fyrir árið 2002 haldinn. Þessi fundur hefði að öllu eðlilegu átt að vera í vor, þar sem fyrri stjórn var kosin vorið 2001 og hafði því setið í hátt í tvö ár. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf en engar lagabreytingartillögur lágu fyrir fundinum. Stutt og laggóð skýrsla stjórnar og reikningar félagsins voru samþykkt án athugasemda. Ný stjórn var kosin án mótframboða. Formaður: Kristbjörn Gunnarsson (Geirfugl) Stjórnarmenn: Guðmundur...

Hópflug á Hólmavík (13 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Sunnudaginn 18. ágúst stendur Flugfélagið Geirfugl fyrir hópflugi á Hólmavík. Stefnt er að eftirfarandi dagskrá: 10:00 mæting í Hreiðrinu, skýli 26. 11:00 Brottför 12:30 Allir lentir á Hólmavík 13:00 Fiskur dagsins á Cafe Riis 14:30 Galdrasýning á Ströndum 15:00 Leiðsögn um bæinn, endað á flugvellinum 16:00 Lagt af stað, flug um Vestfirði eða beint í bæinn eftir veðri og áhuga Að sjálfsögðu eru allir einkaflugmenn velkomnir með. Skráning er á Geirfuglavefnum til að áætla hvað margir hafa...

Vestmannaeyjar um Verslunarmannahelgi (4 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Sælir Þá er hið árlega Vestmannaeyjanotam Flugmálastjórnar komið út. Það er mun jákvæðara en glaðningurinn í fyrra. Nú eru ekki settar neinar ákveðnar takmarkanir á einkaflug, en hins vegar fylgir setningin: “Einkaflug má búast við hindrunum ef aðstæður krefjast. ” Einnig verður einhver stjórnun á flughlaði og búið að setja upp Grundarbylgju (119.5). Ég hvet þá flugmenn sem ætla til Eyja til að kynna sér þetta Notam vel og vera með leiðirnar á hreinu. Það er fátt leiðinlegra en einn...

Klíkur, samtök, félög og stofnanir í einkaflugi (5 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Mazoo sendi inn grein sem endaði á korki um þetta mál. Hér eru hilmiklar pælingar um málið, og ég tel að þessi umræða eigi fullkomlega heima sem grein. Það sem við þarf að skilgreina eru verksvið klúbbanna. Við erum með heilan helling af félögum, en lítið af fólki til að manna þau. Ef allir eru að gera sama hlutinn, hver í sínu horni, þá verður ekkert úr neinu. Þau félög (og flokkar félaga) sem ég man eftir í svipinn eru: - FÍE, Félaga Íslenskra einkaflugmanna - Flugmálafélagið (og...

Falun Gong og Kínaheimsókn (25 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Nú tæpum mánuði eftir utanríkisráðherrafund NATÓ og allt uppistandið í kringum hann er von á öðrum góðkunningja Halldórs í heimsókn. Jiang Zemin Kínaforseti er að koma og tekur með ser 150 manna fylgdarlið. Það sérstaka við þessa heimsókn er að Kínverska sendiráðið er búið að senda Halldóri lista yfir fólk sem má ekki vera á landinu á sama tíma og ástkær forseti þeirra. Þetta munu aðallega vera meðlimir heilsuræktarklúbbsins Falun Gong sem hugðust efna til íhugunar og friðsamlegra mótmæla...

Jórvík - Einkaflug (40 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ja, nú er það svart. Það var löngu vitað að kóarar hjá Jórvík fá ekki borgað, nú er Jórvík farin yfir í einkaflugið. Samkvæmt fréttum var nokkrum farþegum frá vestmannaeyjum skutlað upp á land í kennsluvélum Flugsýnar undir því yfirskini að aðeins væri um einkaflug að ræða. Er þetta ekki alveg út hött ? Eru þeir ekki ennþá með allar vélarnar hans Ísleifs í rekstri ? Enn furðulegri eru þó viðbrögð Flugmálastjórnar. Þarna er um skýrt brot á reglum að ræða. Farþegar sem áttu pantað flug með...

Afmæli hjá Geirfugli (3 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Það eru ekki allar flugfréttir dauði og djöfuldómur, þó annað megi halda af umfjöllun fjölmiðla. Grímseyjarflugið um síðustu helgi var frábært, og núna um helgina var annar skemmtilegur atburður. Flugfélagið Geirfugl var stofnað þann 27. maí 1997 af 6 ungum og upprennandi einkaflugmönnum. Nú er barnið orðið fimm ára, og var haldið upp á það með miklum látum á laugardaginn (kosninga- og Eurovisiondaginn). Skýli 24 var lagt undir fagnaðinn sem samanstóð af grillveislu, myndasýningu, ræðuhöldum...

Lok, lok og læs og allt í stáli (6 álit)

í Flug fyrir 22 árum
Nú er loksins komið út NOTAM frá FMS sem staðfestir það sem flesta grunaði. Til að bjarga sálarheill NATÓ toppana á að stoppa allt einka- og kennsluflug frá Reykjavíkurflugvelli í nokkra daga á meðan Fokkerar FÍ fljúga óáreittir yfir borginni. Nákvæmlega stendur til að banna alla flugumferð um Reykjavíkurflugvöll og hring í 5 NM radíus í kring um völlinn, frá sjávarmáli og upp i 10.000 feta hæð, nema fyrir nokkrar undantekningar sem eru áætlunarflug, leiguflug, sjúkraflug og vélar í neyð. Þó...

Á hvolfi í Borgarfirði (49 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Veit einhver hvað var að gerast á Stóra Kroppi í gær ? Vísir.is var með frétt um að Cessna 652 hefði endað á hvolfi, sem þýðir væntanlega að Cessna 152 frá FÍ hafi lent í einhverri vitleysu. Var þetta snjór á brautinni ? Hvernig var vindurinn ? Getum við lært eitthvað ? Verður flugvélin gerð upp, eða afskrifuð ? Er þetta tækifæri til að kaupa nýja ? Kristbjörn

Lifi byltingin ! (34 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Sælir Nú eru flugumferðarstjórarnir komnir með samning til nokkurra ára, og verða væntanlega til friðs næstu árin. Samgöngunefnd er að skoða FMS, og ekki er útlit fyrir að nýju loftferðalögin verði samþykkt á næstunni. Það er hins vegar ekki allt í góðu gengi. Það virðist afskaplega lítið vera að gerast niðri á velli. Ég leit niður á völl í gær, sunnudag. Ég byrjaði í FÍ. Það var ágætis veður, en allar vélar inni og einn einmana flugkennari á staðnum. Hjá Geirfugli var lítið að gerast, og...

Flugmálastjórn tekin á teppið (40 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Í fréttablaðinu í dag (öskudag) er áhugaverð frétt. http://www.visir.is/ifx/?MIval=frettir&nr=113 584&v=2 Meirihluti samgöngunefndar (þ.e. Guðmundur Hallvarðsson) er loksins farinn að hlusta á það sem flugheimurinn hefur verið að segja þeim síðustu mánuðina. Eftir að fulltrúar Flugskóla helga og Jórvíkur fengu að lesa yfir nefndinni virðist loksins eiga að fara að skoða málin. Ég óska Jórvík og Helga til hamingju með þennan árangur. Í flestum siðmenntuðum löndum væri Sturla löngu búinn að...

Veikindi flugumferðarstjóra og lokun BIRK (32 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Eins og fram hefur komið á korkum ákvað Flugmálastjórn að banna einka- og kennsluflug frá Reykjavíkurflugvelli síðastliðinn sunnudag eftir að 15 af 23 flugumferðarstjórum á vakt tilkynntu veikindi. Þetta gerðist á björtum og fallegum sunnudegi í frábæru flugveðri. Þetta var einn af þessum dögum þegar loftið yfir Íslandi ætti að vera fullt af einkaflugvélum að njóta veðursins, en nú var það stöðvað vegna kjaradeilu flugumferðarstjóra. Nú ætla ég ekki að efa það að allir þessir...

2. umræða um loftferðafrumvarp (5 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Sælir Á fimmtudaginn verður margumrætt frumvarp samgönguráðherra um stóraukin völd FMS tekið til 2. umræðu á Alþingi. Þingpallar eru öllum opnir, og hvet ég þá sem eiga heimangengt til að láta sjá sig, og heyra hvað alþingismenn hafa um málið að segja. Dagskrá Alþingis þessa vikuna er á vefslóðinni http://www.althingi.is/vikan/vikan.html Fundur hefst kl. 10:30, og er loftferðafrumvarpið fyrsta mál á dagskrá. Nú er tækifæri til að sýna að við látum ekki vaða yfir okkur alveg þegjandi og...

Aðgangur að flugvelli (11 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Sælir Síðan ég byrjaði að fljúga hef ég alltaf getið gengið inn um hlið og beint inn á völl. Í morgun gerðist það í fyrsta skipti að ég mætti fyrirstöðu á leiðinni. Slökkviliðið hafði upp á sitt einsdæmi ákveðið að nú væri góður tími til að læsa gönguhliðinu við Fluggarða. Gönguhliðið er það hlið sem ég er vanur að nota, og það hlið sem vallaryfirvöld hafa verið að benda okkur einkaflugmönnum á að nota til að minnka bílaumferð um svæðið. Eftir að ég hafði upp á Slökkviliðsmönnum útskýrðu...

Flugskóli Íslands (67 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Sælir Eftir að hafa hlustað á umræður á rampinum um Flugskóla Íslands og allt sem honum fylgir ákvað ég að nnotfæra mér lýðræðið og upplýsingafrelsið sem ríkir hér á landi, og fletti upp umræðum um málið á þingi þegar frumvarpið var fyrst lagt fram. Slóðin að þingfundinum er: http://www.althingi.is/altext/120/f126.sgml - smellið á tímann 14:07 til að skoða umræðurnar. Hér segir Halldór Blöndal m.a. “Ekki er gert ráð fyrir að skólinn eigi kennsluvélar heldur semji hann við aðra starfandi...

Cessna fyrir MD í Mílanó (3 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það var ekki gaman að hlusta á fréttirnar í morgun. Vinnufélagi minn er staddur í Mílanó, eftir að hafa flogið þangað í gærkvöldi með SAS frá Køben. Sennilegast var hann í sömu flugvél. Nú er komið í ljós að orsökin var Cessna Citation II sem var á röngum stað á röngum tíma. Ég átti mjög erfitt með að skilja hvað maðurinn var að vilja á Skyhawk í svartaþoku á alþjóðlegum flugvelli. Allan morguninn var bara talað um fjórar manneskjur í Cessnu, gott ef einhver fréttastofan sagði ekki fjögurra...

Vestmannaeyjabær vill Íslandsflug (57 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Nú berast stórfréttir frá Vestmannaeyjum. Íslandsflug ætlar að taka Dornierinn í flug milli Lands og Eyja, eftir sérstakar áskoranir frá bæjarstjórn Vestmannaeyja. Einnig hefur bæjarstjórn lýst því yfir að öll flug á vegum bæjarins verði með Íslandsflugi. Hvað kemur til ? Þekkir bæjarstjórnin Jórvíkurmenn ? Af hverju má ekki gefa þeim sjens þarna eins og í Patró fluginu ? “Ekki með traustan fjárhagslegan bakgrunn” ? Hvað með það ? Hvernig eiga þeir að koma sér upp “sterkri fjárhagsstöðu” ef...

Sími til sölu, kostar eina tölu... (8 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Nú er fyrsta hluta útboðsins á Landssímanum lokið. Eins og við var að búast varð þetta stórkostlegt klúður. Ekki seldist nema einn fimmti af því sem boðið var, og nægir það ekki einu sinni til að hægt sé að skrá fyrirtækið á Verðbréfaþing. Það liggur fyrir að úboðið mistókst. Ástæðurnar eru margar, en helst hafa menn talað um lélega tímasetningu, hátt verð, fyrirkomulag á útboði og hinn óþekkta og valdamikla kjölfestufjárfesti. Þetta eru allt atriði ákveðin af Ríkisstjórn og...

Tryggingafélög - Til hvers ? (11 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Í kjölfar atburðanna í Bandaríkjanna berast fréttir af því að tryggingafélög hafi einn tveir og þrír sagt upp öllum ábyrgðartryggingum vegna stríðs og hryðjuverka. Er þetta hægt ? Flugfélög (og þar með við, farþegarnir) hafa verið að borga iðgjöld vegna þessara trygginga árum og áratugum saman, en þegar loksins kemur að því að tryggingafélögin þurfa að borga út ákveða þau að segja öllu saman upp. Þetta er eins og öllum brunatryggingum væri sagt upp daginn eftir stórbruna. Verkefni...

50 milljarða dómur (8 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Sæl verið þið “Kanar eru klikk” hefur löngum verið haft að orði, sérstaklega þegar fréttir berast af dómsmálum vestra. Nú eru þeir endanlega gengnir af göflunum. Í stuttu máli er sagan þannig. Í ágúst 1989 reyndi flugmaður að lenda á stélhjólsvél (Cessna 185) í hliðarvindi. Hann klúðraði lendingunni, gaf í (með fulla flapa og nefið trimmað upp) og ætlaði að framkvæma “góaránd”. Að sjálfsögðu stallaði vélin og krassaði úr lítilli hæð. Flugmaður og farþegar brenndust illa, og einn farþegi...

Flugferð (18 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Sælt veri fólkið Af hverju eru menn að óskapast svona mikið yfir einhverjum risaþotum sem aldrei eiga eftir að lenda á Íslandi í staðinn fyrir að tala um alvöru flug og flugvélar sem dauðlegt fólk getur fengið að fljúga ? Hér kemur til dæmis umfjöllun um Socata TB-9. Þrjár slíkar hafa verið skráðar á Íslandi, og tvær þeirra hafa brotlent. Einnig eru til fjórar stærri TB-vélar, tvær þeirra hjá Geirfugli, og tvær annars staðar. TB-9 er fín flugvél fyrir útsýnisflug, með stóra glugga og fjögur...

Flugskírteini of dýr hjá Flugmálastjórn (4 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sæl verið þið Ég fékk einkaflugmannsskírteinið mitt í byrjun júní, og var þá rukkaður um 14.000 krónur fyrir skírteinið. Mér þótti það mikið, enda nýbúinn að borga 10.500 fyrir bóklega prófið og 20.000 fyrir það verklega. Eftir að hafa skoðað málið sá ég að Flugmálastjórn hefur samkvæmt lögum aðeins heimild til að taka 5.000 krónur fyrir útgáfu einkaflugmanns- eða atvinnuflugmannsskírteina. Ég sendi þess vegna Flugmálastjóra bréf og fór fram á að fá leiðréttingu á þessu, og endurgreiddar...

Flugfélag Íslands, Jórvík og fleira (11 álit)

í Flug fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sælt veri fólkið Ég sakna þess að sjá ekki neina umræðu hérna um FÍ, Jórvík, Flugleiðir og allt sem því fylgir. Hvað eru menn eiginlega að hugsa hjá FÍ ? Er það virkilega skynsamlegt hjá þeim að hætta með ATR og færa sig meira yfir í Fokker ? Hvaða ofurást hafa menn á Fokker í FÍ ? Er einhver hérna sem þekkir rekstrarkostnaðinn á Fokker vs. ATR (eða JetStream 31 ef út í það er farið). Er Jórvík á leiðinni beint á hausinn, eða eru þeir að gera góða hluti ? Er einhver sem þekkir JetStream...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok