Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Jonzi
Jonzi Notandi frá fornöld 1.184 stig

Stampurinn til Lazio (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Öllum að óvörum hefur Sir Alex Ferguson ákveðið að selja hollenska varnarjaxlinn Jaap Stam til SS Lazio. Klárlega búbót fyrir hina himinbláu - Dino Zoff er búinn að jarma eins og kvalin geit í allt sumar að hann vanti toppklassavarnarmann til að vera með lið sem geti keppt um Scudettoinn. Lítur út fyrir að hann hafi fengið sinn mann. Um leið er Sergio Cragnotti orðinn óþolinmóður eftir árangri og hann lét hafa eftir sér að nú væri Zoff kominn með allt sem þarf til að slást um ítalska...

AC Milan - Fréttir (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
COCO TIL LAZIO Fréttir frá Ítalíu herma að Milan hafi selt hinn unga varnarjaxl Francesco Coco til Lazio. Þó ég sjái eftir Coco þá er þetta díll sem kemur öllum vel; Lazio þurfa mannskap í vörnina, ekki síst eftir að Negro og Mihajlovic tjónuðust báðir í seinni leiknum við Copenhagen í undankeppni CL; Milan vantar að laga fjárhaginn eftir hressilega eyðslu í sumar; og Coco fær sjálfsagt fleiri tækifæri hjá Lazio þar sem Terim virðist kjósa að nota Serginho fram og til baka á kantinum. Lazio...

Salas um kyrrt hjá Lazio?!? (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er komið babb í bátinn hjá Juventus. Marcelo Salas kemur kannski ekki til liðsins eftir allt. Juve eru búnir að samþykkja, Lazio eru búnir að samþykkja, Salas er búinn að samþykkja….en Darko Kovacevic er ekki tilbúinn að samþykkja. Hann átti að fara í skiptum fyrir Salas en launakröfur hans eru búnar að setja málið í uppnám. Hann vill fá 3,3 milljónir USD í árslaun en Sergio Cragnotti er hreint ekki á því að fallast á það. Juve vilja ólmir frá El Matador fyrir helgina þegar 1. umferð...

Fiorentina : svartnættið blasir við. (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það held ég að það sé skítt að vera áhangandi La Viola þessa dagana. Flestallar stjörnurnar eru á bak og burt, og þær fáu sem eftir eru verða líklega seldar á næstunni ef liðið á ekki að fara á kaldan klaka. Nú er svo komið að leyfi félagsins til að leika á Artemio Franchi leikvangnum er útrunnið. Fáist ekki peningar til að borga fyrir endurnýjun leyfisins fær liðið ekki að spila þar í vetur. Eina leiðin til að afla peninganna í tæka tíð er að selja Enrico Chiesa. En þó það tækist (hann er á...

Ný stjarna í Serie A ?! (10 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það bendir allt til þess að Inter Milan hafi dottið í lukkupottinn þegar þeir fengu til liðs við sig hinn 19 ára brassa, Adriano. Hann kom til Inter frá Flamengo í Brasilíu í skiptum fyrir Vampeta og til að byrja með stóð til að hann yrði fyrst um sinn í láni hjá Venezia eða Perugia enda lítið um laus pláss í stjörnum prýddu liði Internazionale. En frammistaða Adriano á undirbúningstímabilinu hefur heldur betur breytt því og nú hefur Masimo Moratti lýst því yfir að pilturinn fari hvergi...

Fréttir af leikmannamarkaði (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Jæja, góðir hálsar. Hér kemur smá slatti af nýjum og nýlegum fréttum og sögusögnum. MARIO JARDEL ENDAR HJÁ MÓNAKÓ Sagan endalausa af brottför Mario Jardel frá Galatasaray virðist loks vera að nálgast síðustu kaflana. Eftir að hafa verið orðaður við AC Milan, Inter Milan, Juventus, Marseille, Porto og Bayern München (er ég að gleyma einhverjum…?) þá virðist nú næsta öruggt að hann gangi til liðs við AS Mónakó. Galatasaray hafa þurft að horfa upp á markaðsvirði Jardels hrapa undanfarnar vikur...

Verða Inter Milan rosalegir ?! (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta er spurning sem leitar á mann í kjölfar úrslita á svokölluðu “Moretti” bikarmóti hvar liðið spilaði við ekki minni lið en Juventus og Lazio. Það er skemmst frá því að segja að Internazionale léku á alls oddi, unnu báða leiki sína og stóðu uppi sem handhafi dollunnar á þessu sterka æfingamóti. Inter unnu Lazio 3-0 með mörkum frá Mohammed Kallon og Christian Vieri (brace hjá Bobo!). Það eina sem gladdi augað hjá Lazio var samspil Mendieta og Stefano Fiore sem var vægast sagt magnað á...

Lazio og Parma tapa í CL !!! (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það byrjar ekki gæfulega fyrir ítölsku liðin tvö sem taka þátt í undankeppninni fyrir Meistaradeildina. Lazio tapaði 2-1 fyrir FC Copenhagen og Parma tapaði 2-0 fyrir franska félaginu Lille. Þessum liðum er hollara að girða upp stuttbuxurnar og taka almennilega á því í seinni leikjunum því þau eru klárlega sterkari en andstæðingarnir - á pappírnum amk. Reyndar vantaði Mendieta og Castroman í lið Lazio, sem og Marcelo Salas ( sem hefur gefið sögunum um að hann sé að flytja sig til Juve byr...

Fréttapunktar (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er nú staðfest að markahrellirinn Mario Jardel fer ekki til Juventus, heldur aftur til Porto. Hann gaf forráðamönnum Juve frest til að setja sig í samband og þegar sá frestur rann út án þess að Jardel heyrði frá þeim gekk hann aftur til liðs við sitt gamla félag. Feginn er ég - Juve hefði vart getað fundið betri mann til að taka við treyju nr 9 og að mínu mati frámunanlega heimskulegt að láta þennan leikmann ganga þeim úr greipum. Paolo Futre, sem í dag gegnir stöðu “sporting director”...

Serie A 2001-2002 (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Erum við sammála um það að það eru 5 lið í ítölsku úrvalsdeildinni sem eiga séns í Scudettoinn ?! Á pappírnum að minnsta kosti?! Núverandi meistarar, AS ROMA. Lítið breytt lið frá því síðast, en hey - þeir unnu deildina nokkuð örugglega með þessum mannskap. JUVENTUS. Misstu Zizou, en bættu við sig Buffon, Thuram og Nedved. Ekki amalegt það! AC MILAN. Frekar daufir og óstabílir á síðasta tímabili en hafa keypt hressilega inn, losað sig við minni spámenn og líta vel út. INTER MILAN. Stórt...

4-liða Amsterdam mótið (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sælir hugar ! Í dag hefst Amsterdam-mótið svokallaða í fótbolta. Um er að ræða friendly undirbúningsleiki hjá fjórum toppliðum, AC Milan, Ajax Amsterdam, FC Liverpool og Valencia, og ætla öðlingarnir á Sýn að vera svo elskulegir að sýna okkur beint frá þessum viðburði. Tveir leikir eru sýndir beint í dag á Sýn: Ajax-Milan og Valencia-Liverpool. Tímasetningar má finna í dagskrá Morgunblaðsins o.s.frv. Ein mesta spennan í þessu er auðvitað að sjá hið nýja AC Milan lið undir stjórn Fatih Terim....

Marcelo Salas vill ekki til Valencia (10 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Chile-íski framherjinn Marcelo Salas hjá Lazio hefur enn og aftur komið í veg fyrir að verða seldur til annars liðs á síðustu stundu. Til stóð að hann færi til Valencia í skiptum fyrir Kily Gonzales, en nú hefur El Matador, eða Nautabaninn, eins og Salas er kallaður, snögglega neitað að ganga til liðs við Valencia. Þennan leik lék hann líka þegar Lazio var næstum búið að selja hann til Parma, og aftur nú í sumar þegar til stóð að selja hann til Inter Milan. Mótþróinn í Salas þýðir að nú þarf...

Byrjunarlið AC Milan - býður einhver betur ?!? (18 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Góðir hálsar; ég færi ykkur líklegt byrjunarlið AC Milan á næstu leiktíð. Þetta lítur ágætlega út fyrir okkur, rauðsvartir nær og fjær. —-Inzaghi—-Shevchenko—- ———Rui Costa——— —–Redondo—Gattuso—– –Serginho———Contra– —Kaladze–Maldini–RoqueJunior— ———–Abbiati———– Til vara eru svo menn eins og Javi Moreno, Massimo Donati, Jose Mari, Albertini, Pirlo o.fl. o.fl. Mér er því spurn - býður einhver betur ?!

AC Milan ætla að kaupa meira (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þrátt fyrir að vera komnir með svakalegan mannskap í hús vilja forráðamenn AC Milan bæta amk. 2 leikmönnum við hópinn. Þeir eru Samuele Dalla Bona, leikmaður Chelsea og fyrirliði U-21 landsliðs Ítalíu, og hins vegar varnarjaxlinn Tomasz Repka hjá Fiorentina, en Fatih Terim hefur miklar mætur á honum síðan þeir tilheyrðu báðir fjólubláa Flórensbatteríinu. Ætli þetta fari svo ekki að verða gott hjá hinum rauðsvörtu? Ég get allavega ekki beðið eftir að næsta tímabil hefjist í Serie A !

Lazio halda áfram að kaupa (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Eftir að hafa landað hinum stórkostlega miðjumanni Gaizka Mendieta er Sergio Cragnotti greinilega kominn í kaupstuð. Hann virðist vera búinn að tryggja sér félaga Mendieta hjá Lazio, argentíska sóknarmanninn Kily Gonzalez, sem er frrrrábær leikmaður vægast sagt! Ennfremur gengst nú hinn firnasterki framherji frá Atletico Madrid, Kiko Narvaez undir læknisskoðun í Róm. Gangi þar allt að óskum mun hann skrifa undir samning á næstu dögum. Er Cragnotti ekki nokkurn veginn búinn að stoppa í götin...

Líftími tískunnar (8 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Er líftími tískusveiflna (e. trends) að styttast ?! Mér sýnist það og þetta er áhugaverð þróun fyrir alla áhugamenn um tísku. Tökum jakkaföt sem dæmi. 1950-1970 voru herrajakkaföt með þröngu og beinu sniði, buxurnar rétt ökklasíðar. Semsagt 20 ára trend sem hélt sér tiltölulega vel. Þá stækkuðu og breikkuðu boðungarnir á jökkunum all hressilega og jakkafatabuxurnar síkkuðu niður á skó og vel það ásamt því að þær urðu útvíðar. Þetta lúkk entist út áratuginn, ekki lengur. Uppúr 1980 styttast...

Mendieta til Lazio !!! (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fréttir frá Ítalíu herma að samningar hafi náðst milli Valencia og Lazio um sölu á miðjumanninum frábæra, Gaizka Mendieta. Kaupverðið er $40 milljónir (sorrý fyrir dollarasummuna - þetta eru ca. 27 milljónir punda) og mun undirskrift hafa átt sér stað í Róm í gær (17/7 2001). Það eina sem vantar er að Mendieta sjálfur segi OK og í ljósi ummæla hans frá því síðustu helgi, á þá leið að hann vildi burt frá Stadio Mestalla, ætti samþykki hans að ligja fljótlega fyrir. Þar með hefur Sergio...

AC Milan lánar Ibrahim Ba til Marseille (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Franski miðvallarleikmaðurinn Ibrahim Ba, sem leikið hefur með Milan sl. 4 ár, hefur verið lánaður í eitt ár til liðsins hvar hann hóf feril sinn, Olympique Marseille. “Ibou” hefur fengið fá tækifæri hjá AC Milan þann tíma sem hann hefur verið þar og langar að spila aftur reglulega og hafa gaman af hlutunum - nokkuð sem ekki hefur verið tilfellið hjá honum hingað til hjá ítalska stórveldinu. Þetta er kannski besta lausnin, en það er grátleg synd að þessi frábæri leikmaður skyldi aldrei ná að...

Nakata til Parma (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Parma virðast aðeins ætla að rétta úr kútnum eftir svaðalega sölu á toppleikmönnum undanfarna daga. Það virðist næsta frágengið að miðvallarleikmaðurinn snjalli frá AS Roma, Hidetoshi Nakata, gangi til liðs við hina gulbláu fyrir $26 milljónir. Nakata sem var orðinn langþreyttur á bekkjarsetu sem varaskeifa Francesco Totti mun eflaust blómstra í aðalhlutverki á miðjunni hjá Parma og er rétt að óska áhangendum liðsins til hamimgju með þennan frábæra leikmann. Af Parma er það einnig að frétta...

Cragnotti kveður knattspyrnuna!!! (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sergio Cragnotti, hinn umdeildi og litríki forseti og aðaleigandi Lazio, tilkynnti á blaðamannafundi í gær (5.júlí) að hann ætli að draga sig út úr knattspyrnuheiminum. Ástæðan er fyrst og fremst sú að þriðjudaginn 4. júlí gerðu 100 meðlimir hörðustu áhangendaklíku liðsins, Lazio Ultras, svívirðilega árás á heimili Cragnotti til að sýna reiði sína vegna sölunnar á Pavel Nedved til Juventus. Lýðurinn umkringdi hús forsetans, kastaði grjóti í það og krotaði svívirðingar um hann á nálæg hús....

Zidane til Real Madrid ! (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Spænska pressan hefur greint frá því að Zinedine Zidane sé genginn til liðs við spænsku meistarana Real Madrid. Verðmiðinn á franska meistaranum var $67 milljónir sem gerir í pundum ca. 45 milljónir. Hverrar krónu virði, segi ég fagnandi !!! Þeir Luciano Moggi og Florentino Perez munu hafa hist í Sviss til að ganga frá samningnum í gær og er beðið eftir opinberri tilkynningu frá Madrid í dag. Viljið þið reyna að ímynda ykkur Figo og Zizou spila saman á miðjunni?!? Það er bara varla hægt að...

Rui Costa er AC Milan leikmaður - staðfest! (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er nú opinbert að Manuel Rui Costa er genginn til liðs við AC Milan og það er bara mesta snilldin í heiminum geiminum. 5 ára samningur með árslaun uppá $5millur. Til hamingju allir rauðsvartir áhangendur nær og fjær með þessa stórkostlegu viðbót við liðið okkar - maður gleymir bara næstum svekkjunni yfir komu Inzaghi…við gátum ekki fengið mikið betri mann á miðjuna hjá okkur. Maður getur bara ekki beðið eftir að næsta tímabil hefjist. Við munum rúúúúúla !!! Og btw - Þó að Inzaghi sé...

AC Milan hafa keypt Inzaghi (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Jæja kæru AC-félagar nær og fjær - martröðin er orðin að veruleika. Floppó Inzaghi hefur skrifað undir 5 ára samning við Milan og létu Galliani & co hinn nýkomna Christian Zenoni frá Atalanta fylgja með til Juventus í staðinn. Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja; Milan er mitt hjartfólgnasta lið í heiminum, og Inzaghi stendur fyrir allt sem ég þoli ekki í fótbolta. Hvernig fæ ég þetta til að ganga upp ?!? Vonandi breytist hann bara og verður ofsa skemmtilegur leikmaður (jamm, og Lee Bowyer...

Fiorentina leysist upp! (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er fátt til að kætast yfir fyrir hina fjólubláu Flórensbúa og aðdáendur. Flestir leikmenn sem eitthvað kveður að eru á leiðinni burt (scudettoinn hans Batigol hefur vitanlega bráðsmitandi áhrif) og eini maðurinn sem raunverulega liggur á að losna við, hinn vitfirrti forseti Vittorio Cecchi Gori, situr sem fastast. Toldo fer reyndar ekki til Barca, sá díll fjaraði út því Börsungar eiga ekki krónu, en hann fer líklegast til Roma í staðinn fyrst Atalanta vill ekki selja markvörð sinn,...

Lippi þjálfar Juventus - staðfest. (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Varaforseti Juventus, Vittorio Chiusano, hefur loksins fengist til að staðfesta að Carlo Ancelotti verði sagt upp störfum sem þjálfari liðsins um leið og tímabilinu lýkur um næstu helgi. Chiusano sagði ennfremur að engu breytti héðan af hvort Juve yrðu meistarar eða ekki - ákvörðunin hefði þegar verið tekin. Eftirmaður Ancelotti er svosem ekki ókunnugur á Stadio Delle Alpi. Hann er sjálfur Marcello Lippi sem gerði Juventus að langbesta liði Ítalíu og einu besta liði heims á árunum ‘96 - ’98....
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok