Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

EnderWiggin
EnderWiggin Notandi síðan fyrir 19 árum, 7 mánuðum 42 stig

Hversu stórt vandamál eru skattsvik? (44 álit)

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
"Ef allir Íslendingar borguðu skattinn sinn gætum við lækkað tekjuskatt úr 38,5% í 5% [sic]" Þetta frétti ég gegnum millilið frá innheimtustjóra ríkisins, og er ekki að grínast. Enginn fílar að borga skatta, það er nokkuð víst. Hvað þá að missa tæpan helming launa sinna til ríkisins. Þess vegna sleppa sumir því einfaldlega. Sniðugt, ekki satt? Ef við getum tekið orð innheimtustjóra trúanleg eru skattsvik mun stærra vandamál fyrir Íslendinga en flestir gera sér grein fyrir. Er leið til að...

Nafnlausu hlutirnir fyrir neðan Moría: hvað eru þeir? (7 álit)

í Tolkien fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Lengi hef ég velt fyrir mér hvað nafnlausu verurnar sem Gandalfur minnist á í lýsingu sinni á bardaganum við Balrogginn séu. Það sem veldur mér mestum heilabrotum í því máli er að Gandalfur segir nafnlausu verurnar vera eldri en Sauron. Eins og Tolkien-nerðir hljóta að vita skapaði Alfaðir Ænúana fyrst allra hluta, þegar ekkert var til nema Tómið mikla og Alfaðir sjálfur. Hafa spakir menn hér einhverja skýringu á þessu? Gætu þessir hlutir mögulega verið eldri en Alfaðirinn sjálfur? Eða...

Fyrst friður. Svo vinstri eða hægri! (23 álit)

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Þó svo að umræðan um vinstri eða hægri- einstaklingshyggju vs samhyggju sé óumdeilanlega afar mikilvæg þykir mér friður vera langmikilvægasta markmiðið í dag. Þó svo að sumir, þ.e.a.s. Bandaríkin hafi grætt stórkostlega á stríði geta stríðshrjáðar þjóðir ekki eygt frið fyrr en friður kemst á þar. Friður er mikilvægasta málefnið í dag. Punktur. Þó svo að ég sé persónulega vinstrisinnaður hef ég ekkert á móti hægrimönnum, nema kannski þá staðreynd að þeir styðja frekar stríðsrekstur en...

And-höstler? (28 álit)

í Rómantík fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Komiði sæl og blessuð. Ég er 17 ára gaur í MR sem er að pæla í ástarmálum, eins og margir á þessum aldri gera. Þó tel ég mig ekki vera gelgju, vaxinn upp úr því skeiði fyrir nokkrum árum. Ég hef orðið var við síaukinn áhuga hins kynsins á mér á þessu ári (ekkert mont hér í gangi, nota bene). Ég er ekki þessi manngerð sem stekkur á hvaða sætu stelpu sem er á árshátíðum eins og tíðkast hjá mörgum strákum. Ég er í rauninni bara að bíða eftir réttu stúlkunni, ef þið skiljið hvað ég meina. Er það...

[D2] Verðmismunur á char týpum: ódýrir og dýrir chars (1 álit)

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Hér vildi ég velta upp pælingu: Sum build gera ráð fyrir og þarfnast þess jafnvel að spilarinn sé ríkur af háklassaútbúnaði. Dæmi um þetta er skelemancerinn. Í grein minni hérna um daginn sagði ég að þetta væri ódýrt build, en ég hef nú komist að því að svo er ekki. Svona karakter þarf mikið af +skill hlutum til að gera það gott í hell, ég fattaði það ekki þegar ég skrifaði greinina, en charinn minn er vel útbúinn og hefur skeletons á lv 39. Þessvegna skulu menn taka tillit til eigin...

Uppreisn æru fyrir blessaðar beinagrindurnar! (13 álit)

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Það var nú þannig í gamla daga í d2 að beinagrindurnar voru bölvað rusl, en nú með nýrri og endurbættri útgáfu af d2 hafa þær orðið monster öflugar. Þeir sem ekki trúa mér: Necromancerinn minn er ekki enn kláraður en hefur raise skeleton og skeleton mastery á lv 37. Beinagrindurnar eru með 800hp, 1000+ def, 65 resist all í hell, og gera 500-600dmg, það er 1k-1.2k með might árunni af mercinum. Og þar sem ég býst við að ná skillunum yfir lv 40 á endanum er hann nokkuð ósigrandi. Tiltölulega...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok