Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Dosatunsbraedur
Dosatunsbraedur Notandi síðan fyrir 18 árum, 9 mánuðum 220 stig

Muna að skíra korkana lýsandi nöfnum (10 álit)

í Hjól fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Ég vill minna ykkur á að skíra korkana ykkar betur, það eru búnir að koma inn allnokkrir korkar sem heita fáránlegum nöfnum s.s. “2009”, “snilld” og “???”. Það er ekkert það erfitt að koma með eitthvað gott nafn á korkinn í staðinn fyrir þetta rusl… t.d. “2009 hjólalínan frá þessum framleiðenda”, “Red Bull Rampage lifnað aftur við” og “Vandamál með ískur í dikabremsum”. Verið pínu duglegir og skrifið nokkra stafi í viðbót. Stjórnandi

Að senda inn linka á torrent... (12 álit)

í Hjól fyrir 15 árum, 6 mánuðum
…er bannað! Það eru sumir sem eru ekki að skilja það (nefni engin nöfn) og ef þeir fara ekki að hætta því þá munu þeir enda í banni. Vinsamlegast hættið því! Stjórnandi

Smá frá AK crew (24 álit)

í Hjól fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Hérna er smá samsetningur úr myndbandasafni AK crew eftir snögga utanlandsferð. Gjörið svo vel og slefið! http://vimeo.com/1729549

Ég er farinn í frí (7 álit)

í Hjól fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Frá og með föstudeginum 29. ágúst er ég farinn í að minnsta kosti 12 daga frí. Ég mun hugsanlega koma eitthvað hérna inn á þessum tíma en það er alveg óvíst. Af þessum sökum vill ég biðja menn um að tala við einhvern annan stjórnanda en mig ef það er langur tími síðan ný mynd hefur verið samþykkt eða það þurfi að eyða korki eða svörum. Þakka ykkur fyrir, Dósatúnsbræðu

3. Bikar í Hlíðarfjalli, Akureyri (47 álit)

í Hjól fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Takið fram spariskóna, hysjið upp um ykkur buxurnar og rakið á ykkur handakrikana því nú er komið að því! DH á AK er um næstu helgi! Ný braut, nýjar beygjur, nýr hraði, ný hugsun og bara nýtt allt! Helmet cam af brautinni. Mætið eða verið Reykvíkingar!

Djöfull er ég að fá upp í fkn kok! (57 álit)

í Hjól fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Hvert er þetta áhugamál að stefna? Þrír korkar um hópræd á sama deginum! Skítkast á skítkast ofan og ekkert leitað að upplýsingum áður en menn spurja! Ég er búinn að reyna að vera duglegur og góður stjórnandi hérna inni, en eins og margir aðrir gamalreyndir menn hérna inni þá er mér farið að leiðast að koma hérna inn bara til að lesa 5 korka um hópræd og copy/paste af einhverri heimasíðu vegna þess að einhver var að kaupa sér nýtt hjól fyrir 30 mín. Annað sem fer líka mjög mikið í taugarnar...

Sjáiði eitthvað útúr þessu? (22 álit)

í Hjól fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Haldiði að þetta sé á Íslandi? Og það eru engar myndir í bið þannig að skrattast til að senda inn einhverja almennilegar myndir ef þið viljið hafa eitthvað flæði á myndunum hérna inni!

Alvöru drasl... (1 álit)

í Vetraríþróttir fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Hérna er svona helmingurinn af skíðasafninu mínu þessa stundina. Glæný Elan svigskíði frá því í ár sem ég neyddist til að kaupa vegna breytinga á reglum hjá Alþjóða Skíðasambandinu. Síðan eru Atomic svig og stórsvigsskíði frá því í hittifyrra sem ég ætlaði mér að nota þangað til í myndi hætta en FIS er bara með leiðindi. Svo lengst til hægri eru Atomic svigskíði frá því í hittihittifyrra eða eitthvað.

Var einhver að taka vídeó í Bláfjöllum 16. mars? (16 álit)

í Vetraríþróttir fyrir 16 árum
Langaði bara að tékka hvort það leyndist einhver hérna inni sem annaðhvort tók eða hefur rekist á myndband á netinu tekið 16. mars af neðsta brattanum á Bikarmótinu í stórsvigi sem var haldið í Bláfjöllum? Ég er sérstaklega að leita að seinni ferð karla og dettunni sem ég tók fyrir framan tímatökuhúsið. Bíst nú ekki við að fá nein svör en ef svo heppilega vill til að einhver laumi á myndbandi, eða jafnvel bara myndum, þá hef ég MJÖG mikinn áhuga á að sjá það! Takk.

Mót um helgina, TÉKKIT! (28 álit)

í Hjól fyrir 16 árum, 1 mánuði
Tékkið á auglýsingunni HÉRNA!

CR Johnson (4 álit)

í Vetraríþróttir fyrir 16 árum, 1 mánuði
Getur einhver frætt mig um slysið sem hann lenti í fyrir rúmlega ári? Er að horfa á nýja mynd frá MSP og þar er hann að tala um eitthvað slys sem drap hann næstum því og þurfti að fara í gegnum gífurlega endurþjálfun bara til þess að hreyfa sig! Desmond, ert þú ekki allur inni í þessu?!

Varðandi myndbandakorkinn (Reglur) (16 álit)

í Hjól fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Ég vildi bara minna á þær takmarkanir sem ég hef á myndbandakorknum, það er hvaða myndbönd fá að vera og hverjum verður eytt! Íslensk myndbönd: fá alltaf að vera, sama hversu léleg þau eru þeim verður ekki eytt nema ég sé beðinn um það af þeim sem sendi inn myndbandið í byrjun. Netútgáfur frá framleiðendum: fá yfirleitt að vera, en í þessum flokki þá vill ég sjá myndbönd vistaðar á heimasíðum fyrirtækisins, ég vill sjá hverjir gerðu þetta myndband en ekki hver var svo leiðinlegur að stela...

Freestyle skíðaklossar (6 álit)

í Vetraríþróttir fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Var að velta fyrir mér hvort einhver hérna inni sé eitthvað almennilega inni í því hversu stífa klossa freestyle/back country skíðamenn eru að nota? Þar sem maður er orðinn svo helvíti gamall í þessum keppnisbransa þá hefur maður byrjað að hugsa meira og meira um það að færa sig yfir á freestyle skíðin en ég er ekki tilbúinn að vera að vesenast á þeim í klossunum sem ég er í nuna. Svo hefur mér fundist í myndunum sem ég á að menn séu að nota frekar stutta stafi, er þetta algengt eða...

Hlíðarfjall 14. sept. (2 álit)

í Vetraríþróttir fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Bara ef það væri svona fallegt fleyri daga á ári! Svo held ég að margir væru sáttir með að þetta myndi halda sér svona, þ.e.a.s. snjór í fjallinu en autt í bænum.

Hvernig fannst þér DH mótið á AK? (0 álit)

í Hjól fyrir 16 árum, 6 mánuðum

Úrslit frá AK (18 álit)

í Hjól fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Hérna koma úrslit frá DH keppninni sem haldin var í drullupollinum Hlíðarfjalli í dag: Karlar, 1. sæti - Haukur 2. sæti - Helgi 3. sæti - Grétar Pattar, 1. sæti - Sigurgeir 2. sæti - Sverrir 3. sæti - Egill Kári (Nánari úrslit með tímum kemur fljótlega) Ég vill þakka keppendum fyrir þáttökuna í þessari mjög svo spes keppni. Ég að minnstakosti skemmti mér konunglega og vona að þið hinir hafið gert hið sama. Tapað/fundið: Það fundust hanskar uppí fjalli af gerðinni 661 (teljum líklegt að Egill...

Þá er komið að því! (21 álit)

í Hjól fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Það verður mikið um að vera um helgina á Akureyri, fjallabrun, fjallahjólreiðar og götukeppni. Mættu!

Íslenskt myndband (19 álit)

í Hjól fyrir 16 árum, 7 mánuðum
http://www.youtube.com/watch?v=2WE9TBLvFhA Veskú!

Sniðug síða fyrir allnokkra hérna inni (22 álit)

í Hjól fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Þetta er síða sem athugar stafsetinguna hjá ykkur, og veitir ekki af hjá sumum. Þannig að ég hvet ykkur til að nota þetta. Bætt við 29. júlí 2007 - 23:19 Eftir að hafa fiktað aðeins í þessu hef ég komist að því að þetta er mjög lélegt, tekur ekki einusinni eftir mjög léttum villum.

Nýtt helmet cam vídeó (15 álit)

í Hjól fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Röltuðum einir 7 gaurar uppá Súlumýrar á sunnudaginn og tókum upp þetta myndband: http://www.youtube.com/watch?v=NQ_gTpsTfKU Veskú!

Íslenskt helmet cam action! (23 álit)

í Hjól fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Málið er að við ætluðum að búa til smá XC braut uppí Hlíðarfjalli þannig að fleyra fólk notið þess að hjóla þarna uppfrá. Eftir svona klukkutíma rölt um fjallið vorum við búnir að finna gott brautarstæði sem myndi ekki krefjast mikillar vinnu. Svo eyddum við svona 3-4 tímum í að byggja nokkrar brýr yfir lækina sem eru á leiðinni og þá lýtur brautin út eins og þetta: http://www.youtube.com/watch?v=xCUzn4vB8pE Endilega kommendiði á spurniguna í myndbandinu, sjálfur held ég að okkur hafi...

Önnur DH keppnin og Pimp keppnin (16 álit)

í Hjól fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Hvernig stendur eiginlega á því að þetta er haldið um miðja viku (þriðjudagur og miðvikudagur)? Verð að segja að þetta kom mér dálítið á óvart þegar ég fattaði þetta, bjóst aldrei við öðru en að allar keppnir væru um helgar. Þetta er frekar óþægilegt fyrir okkur utanbæjarmennina sem þurfum að taka 2-3 dag í frí bara til að geta mætt, og það er kannski ekki svo auðvelt fyrir þá sem eru nýbyrjaðir í sínum sumarstörfum. Er einhver möguleiki á að þessu verði breytt?

Hraðamælar (6 álit)

í Hjól fyrir 17 árum, 1 mánuði
Ég var búinn að ákveða það síðasta sumar að fá mér hraðamæli á DH hjólið mitt og styttist nú í að ég fari að versla mér hann. En vandamálið er náttúrulega það að það er til ein og ein tegund frá einum og einum framleiðanda og vandast þá valið. Langar mig því að fá umræður um framleiðendur og týpur frá ykkur sem hafið reynslu á þessum hlutum. Þeir framleiðendur sem ég mest verið að skoða eru Sigma og Topeak, hafiði eitthvað um þá að segja? Það sem ég er að leita að í hraðamæli: Þráðlaus - er...

Ekki kaupa frá þessu fyrirtæki (5 álit)

í Hjól fyrir 17 árum, 1 mánuði
Málið er það að ég pantaði mér DVD myndir fyrir jól af heimasíðunni adrenalinefilms.ca. Ég lagði inn pöntunina 11. nóvember og hélt að ég væri nokkuð safe með að fá þær fyrir jól. En eftir nokkra daga þegar ég fór að skoða pöntunina komst ég að því að hún var ekki einusinni farin af stað, það gerðist ekki fyrr en 19. nóv. Ég hugsaði með mér að þetta skipti ekki mestu máli þar sem það var meira en mánuður í jólin og á síðunni var talað um að international orders tækju svona 3-10 daga að...

Held að þetta gæti verið dálítið magnað að prófa... (14 álit)

í Hjól fyrir 17 árum, 1 mánuði
Þrátt fyrir það að maður þurfi líklega að vera með suddalega góð læri til að hafa eitthvað þol í þessu þá held ég að maður geti fengið ágætt kikk útúr þessu, svona að skjótast á milli fólks og bíla. Án efa eitthvað sem ég væri til í að prófa. LINKUR Bætt við 25. janúar 2007 - 22:08 Þetta á að vera réttur linkur!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok