Tilfinngar. Með kverka fulla af blóði. Kreppta hnefa, kjaft fylli af sandi. Ég bölva í hljóði og syndi að landi. Með höfuð úr grjóti. Brimbrattar tilfinningar, berja mig niður. Ég berst á móti, djúpur er reiðinnar hylur . Með rísandi reiði. Rámri röddu, ríf ég þögnina. Ég leggst í eiði, og flýt við höfnina . Með andlitið niður. Anda vatni, annars huga. Ég finn það er friður, og læt það duga. Marzellius