Ég var að gjóta augunum að þessari flottu gif.* mynd sem Shredder sendi inn og það mynnti mig á spark sem ég “fann upp”.
Þetta er mjög erfitt spark og ég get ekki gert það en ég er að pæla hvort einhver telji sig geta það? Sparkið er framkvæmt þannig að maður byrjar á því að beygja bakið snöggt fram, halda augunum á skotmarkinu og taka aftari fótinn og slöngva honum aftur þannig að hann sparki spark og líkaminn verður ekki ósvipaður sporðdreka í laginu. (eins og sporðurinn sé sparkfóturinn) Síðan stekkur maður með standfætinum afturábak heljarstökk og þegar maður er kominn halfan hring lendir maður á fætinum sem maður sparkar með og klárar loks með að sparka hrikalega öflugt spark beint niður á við með stökk-fætinum. (Eiginlega alveg eins og á myndinni, maður lendir ekki í splitt samt) Ég kallaði þetta Scorpion kick to a sommersault axe kick.
Ef einhver telur sig geta þetta spark, þá kemst sá hinn sami hátt í mati hjá mér.
Fólk er fífl…allt saman. Ekki taka mark á því.