Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Genero
Genero Notandi frá fornöld 37 ára karlmaður
118 stig
Fólk er fífl…allt saman. Ekki taka mark á því.

Íslandsmót í bjj ? (1 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 14 árum, 7 mánuðum
Er komin dagsetning á mótið eða einhverskonar viðmið hvenær það verður haldið?

Mjölnir open (7 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Ég er ekki með aðgang að Mjölnisspjallinu þannig að mér datt í hug að spyrja hér með von um að einhver geti svarað mér. Hvernig verða þyngdarflokkarnir? Það eru tveir mismunand póstar á mjölnisspjallinu, annnar frá Arnari og hinn frá Daníeli og flokkarnir eru ekki eins… kl hvað byrjar mótið, og hvert á maður að senda skráningar? með von um góð svör kv Helgi

Þetta skiptir máli! - Magni þarf þitt atkvæði :) (41 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Nú eru aðeins tveir þættir eftir af Rockstar Supernova keppninni, eins og allir landsmenn ættu nú þegar að vita. Magni Ásgeirsson er búinn að tröllríða þessari keppni nánast frá upphafi og á hiklaust skilið að komast alla leið í úrslit. Það var YKKUR að þakka að hann komst enn aðra vikuna áfram, því þótt hann sé frábær “performer” og góður söngvari þá er það bara staðreyndin að þetta er að hluta til vinsældarkeppni og fólk kýs sitt uppáhald nánast þrátt fyrir frammistöðu. Magni var alveg...

Magni, Supernova og framtíðin (41 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Nú er endirinn á þessu Rockstar:Supernova ævintýrarússíbana að nálgast. Síðasti þátturinn á að fara í loftið 13 september og því aðeins 3 þættir eftir. Ég hef ekki verið á Huga í langan, langan tíma og hvað þá að ég horfi á raunvöruleikaþætti í sjónvarpinu. En þessi keppni er búin að hugfanga mig og ekki skemmir fyrir að íslenski keppandinn okkar að standa sig vonum framar. Magni okkar Ásgeirsson er búinn að standa sig eins og hetja í þáttunum hingað til og ætla ég að fara snögglega yfir...

Ljósmyndanámskeið? (6 álit)

í Ljósmyndun fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Er með Canon Eos 350D og langar rosalega mikið að fara á ljósmyndanámskeið. Læra betur á vélina og linsur, læra alls kyns “trick” við að taka góðar og skemmtilegar náttúrumyndir og svo framvegis. Hvað er ykkar álit á svona námskeiðum? Hafið þið grætt á þeim, eru einhver betri en önnur? Á ljosmyndari.is eru auglýst námskeið hjá Pálma Guðmundssyni, hafiði reynslu af þeim? Síðan er ég á Akureyri þannig að kannski þyrfti ég að taka fjarnámskeið því ég finn engin sem eru í boði hérna. Er það...

World Class í Laugardal (5 álit)

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Hafið þið prófað nýja World Class?? Mig dauðlangar að kíkja þangað einhverntímann, en hvernig leist ykkur sem prófað hafa á staðinn?<br><br>Fólk er fífl…allt saman. Ekki taka mark á því.

(Hún á ekki að heita „Hjálp“ eða eitthvað svollis) (13 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég vil byrja á að útskýra titillinn, en önnur hver grein hérna heitir „hjálp!“, eða „hvað á ég að gera?“ eða eitthvað þvíumlíkt og ég er orðinn þreyttur á því að lesa þær. Málið hjá mér er að ég er með stelpu;auðvitað bestu og fallegustu stelpu í öllum heiminum í mínum augum, en það sýnir bara að ég er ógeðslega subbulega yfir mig ástfanginn af henni! Við erum búin að vera saman svoldið lengi núna og erum í fjarsambandi, og 95%af sambandinu er í gegnum síma :( Við hittumst engan veginn nógu...

Hnúar (6 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég er kominn með viðbjóðslega stóran hnúa á hægri hönd við löngutöng. hann er stór eins og hann sé bólginn en þetta er orðið meira en 3 mánaða gamalt sár, svo veit einhver hvað gæti verið að? btw þá var ég að kýla í harðaspýtu og hætti ekki fyrr en hún brotnaði (sem var þó eftir allnokkur högg)

Kimi eða Mika (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 20 árum, 9 mánuðum

CS-Íslensk orðabók (30 álit)

í Tölvuleikir fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Nú er ég ekki mikill tölvuleikjaspilari en ég hef spilað minn hlut af leikjum um ævina og get öðru hverju rýnt í þá ef lítið er um að vera. Einnig umgengst ég nokkuð mikið af svokölluðum “Strikerum” sem á við fólk sem spilar hinn sívinsæla fjölspilunar tölvuleik “Counter Strike”. Nú eru langflestir, og nánast allir tölvuleikir á ensku, endaer enska útbreiddasta tungumál veraldar. Og þar sem að leikirnir eru á ensku eru lýsingar, hlutir, skipanir, persónur og margt fleira allt komið úr enskum...

RE:AF HVERJU MÁ EKKI SKALLA Í TKD?!! (1 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
“af hverju má ekki skalla í TKD” Mér finnst persónulega að þú ættir að afla þér betri upplýsinga en þetta áður en þú ferð að spyrja svona spurninga. Algengar spurningar um svona lagað er til dæmis:“ í taekwondo er bara sparkað, það er ekki raunhæft, af hverju má ekki grípa í hinn, ef þú lærir þetta ekki þá geturðu ekki lamið einhvern úti á götu…, má ekki brjóta né kasta hinum…” boxari sem æfir box til að verja sig æfir ekki eins og boxari sem er keppnismaður, hann lærir hvernig á að verja...

Kann einhver kóreisku??? (5 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Á þessari síðu hérna: http://www.mooto.com/kor/index.asp eru líklega (voru einu sinna allavega) einhverjir taekwondo þættir að nafni taekwondo dragon eða taekwon dragon, sem hægt er að downloada. Vandamálið er að síðan er á kóreisku og ég skil hvorki upp né niður í henni. Ef einhver þarna úti skilur kóreisku, gæti sá hinn sami gert mér þann góða greiða að fara inn á síðuna og finna út hvernig maður nær í þættina þá yrði ég þakklátur. Genero

TAEKWONDO vefsíða (6 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Veit einhver addressuna á taekwondo síðunni þar sem hægt er að downloada einhverjum taekwondo þáttum? Ég fór einu sinni á þessa síðu en get ómögulega fundið hana aftur!!

Dreamcatcher (18 álit)

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég var að koma af frumsýningunni af Dreamcaster, en ég hafði hlakkað mikið til að bera þessa mynd augum. Ég fékk bókina Draumagildran eftir Steven King fyrir nokkuð löngu síðan en komst ekki til að klára hana. Hún virtist við fyrstu sýn vera mjög hefðbundin King skáldsaga, en mér fannst alltaf eitthvað skrýtið vera að ske í sögunni. Einhverskonar andrúmsloft, sem ekki var allt of augljóst, en það var spennandi og dularfullt. Ég frétti að mynd um bókina væri að koma út og mig langaði að sjá...

Er leikarstéttin að deyja út? (4 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 21 árum
Við lifum á þeim tímum þar sem sjónvarp er orðið stór partur í lífi flestra og eru margir fyrir framan skjáinn tímunum saman daglega. Fyrir ekki svo löngu hófu margir framleiðendur að koma á framfæri svokölluðu “raunvöruleikasjónvarpi”, sem eru þættir sem innihalda fáa eða enga leikara, aðeins þáttakendur og kynnir. Þessir þættir eru flestir þannig að það eru keppendur í einhverskonar leik þar sem einhverjar háar peningaupphæðir eru í verðlaun. Sem dæmi má nefna “Survivor”, sem er einn af...

LOCK STOCK & TWO SMOKING BARRELS (4 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum
Ég er mikill DVD og kvikmyndaáhugamaður, en nú er ég alveg ráðþrota. (!!!PLLLÍÍÍSSS ekki setja þetta á korkin!!!) Það er nánast mál upp á líf og dauða að ég nái að versla mér eins og eitt stykki af snilldarmyndinn eftir snillinginn Guy Ritchie, Lock Stock & Two Smoking Barrels, getur einhver hjálpað mér??!! Ég athugaði hjá Elko, BT og Skífunni en ekkert gekk. Ég gjörsamlega verð að fá þessa mynd sem fyrst!!!!

The Matrix Reloaded- Nýjung eða útnauðgað? (27 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hvað haldið þið að verði um framhaldið af framtíðartryllinum The Matrix? Eins og allir vita þá er framhald af þeirri snilldarmynd að koma í kvikmyndahús hvarvetna í maí. Það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá The Matrix, síðla árs 1999 var:SNILLD! Hið fullkomna handrit með góðum leik, snilldarflottum slagsmála- og byssuatriðum, og flottustu tæknibrellur sem sögur fóru um(að vísu yfirfull af tökuvillum, en jæja) Hvaðan fá þeir þessar hugmyndir? Þeir gera 2 framhaldsmyndir, frétti ég svo. COOL!...

Sporðdrekasparkið.... (2 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég var að gjóta augunum að þessari flottu gif.* mynd sem Shredder sendi inn og það mynnti mig á spark sem ég “fann upp”. Þetta er mjög erfitt spark og ég get ekki gert það en ég er að pæla hvort einhver telji sig geta það? Sparkið er framkvæmt þannig að maður byrjar á því að beygja bakið snöggt fram, halda augunum á skotmarkinu og taka aftari fótinn og slöngva honum aftur þannig að hann sparki spark og líkaminn verður ekki ósvipaður sporðdreka í laginu. (eins og sporðurinn sé sparkfóturinn)...

GTA3 100% (3 álit)

í Hugi fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Er einhver búinn með leikinn 100% (Ég er að spila PS2 útgáuna og kemst ekki lengra en 90%. Ég á bara eftir að klára eitt checkpoint mission á hummernum í Shoreside Vale og finn ekki fleiri pakka.(Mig minnir að ég sé búinn að finna 84))

Ætlar þú að taka sumarfrí frá æfingum? (0 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 10 mánuðum

Taekwondo sparring myndbönd? (0 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Veit einhver hvar ég get downloadað taekwondo sparring myndböndum?
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok