Ég heyri ekki í fuglunum
hjá mér er alltaf þögn.

Það verður aldrei aftur vor.

Síðan rödd þín hljóðnaði
ég hræðist að opna augun.
Ég veit þau munu leita þín
vonlausri leit án fundar.

Tilgangur minn sigldi með þér
burtu yfir hafið.

Með augun lokuð ég reyni
að láta mig dreyma þig.