Var aðeins að leika mér að gera stökur í skammdeginu..

Vetrarsólin vaknar,
vinnur myrkrið kalt.
Von í sálu saknar,
sumars þúsundfalt.


—-

Kvöldin í desember dásamleg eru,
þar dimma mætir ljósum.
Birtan lifir í ljósaperu,
og lífið er dans á rósum.


—-