Vængirnir mínir eru ekki í stíl við þína
Mínir eru brotnir og illa tættir
Í stíl við fokkin samviskuna mína
Orðin svo illa búin, lífið hefur mig svikið

Sumir segja að ástin sé yndisleg
Ástin er það sem gerði mig að því sem ég er
Eitthvað sem enginn eðlilegur ber
ástin er ekki svona fokkin unaðsleg

Vænghaf þitt er stórt og hvítt
eitthvað sem ég stenst ekki
Þú kemur vel fram við mig en þetta er allt svo nýtt
Þetta er ást, ljúf og góð
En samt er þetta allt svo fokkin sárt!

Sumir segja að ástin sé yndisleg
ástin er það sem gerði mig að því sem ég er
Eitthvað sem enginn eðlilegur ber
ástin er ekki svona fokkin unaðsleg

Minnimáttarkennd og ég byrja að fela mig
Hræðslan við að missa þig, óttinn við að særa þig
Vænginir mínir eru ekki í stíl við þína

Svo fokkin svartir að ég lít út fyrir að vera að deyja
Brotnir og illa tættir, hvernig gerðir þú við þína?


Gamall texti…^^
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"