Í draumi sérhvers manns er fall hans falið.
Þú ferðast gegnum dimman kynjaskóg
af blekkingum,sem brjóst þitt hefur alið
á bak við veruleikans köldu ró.

Þinn draumur býr þeim mikla mætti yfir
að mynda sjálfstætt líf,sem ógnar þér.
Hann vex á milli þín og þess,sem lifir,
og þó er engum ljóst,hvað milli ber.

Gegn þinni líkamsorku og andans mætti
og öndvert þinni skoðun,reynslu og trú,
í dimmri þögn,með dularfullum hætti
rís draumsins bákn og jafnframt minnkar þú.

Og sjá,þú fellur fyrir draumi þínum
í fullkominni uppgjöf sigraðs manns.
Hann lykur um þig löngum armi sínum,
og loksins ert þú sjálfur draumur hans.