afhverju segja allir
að ég sé ekki einsog hinir
sjálfið mitt og tómið
það eru mínir vinir
ég ætla ekki að væla
yfir ástandi mínu
enda myndi sú þvæla
vera línu eftir línu

ég reyni að vera glaður
brosa útað eyrum
en það sér hver maður
að það er lygi
mér er illa við allt og alla
og öllum er illa við mig
á prófinu myndi ég falla
ef þetta væri virkilega skóli lífsins

en nóg af mínu kjaftæði
skoðaðu eitthvað annað
sýndu nú snarræði
og smelltu á stóra X-ið efst í hægra horni gluggans

-The Poet
you think I'm different, when we are truly the same, I only show what others hide.