Mig langar mikið til að vita hver er höfundur þessa ljóðs:

~ Loforð Guðs til barnsins ~


Ég hef aldrei lofað að brautin sé bein
og gullskrýddir blómstígar alla leið heim.
Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar
á göngunni löngu til himinsins borgar.
En lofað ég get þér aðstoð og styrk
og alltaf þér ljós þó að leiðin sé myrk.
Mundu svo barnið mitt að lofað ég hef
að leiða þig sjálfur hvert einasta skref.


Ef einhver getur sagt mér það yrði það mjög vel þegið. Og líka því fyrr því betra.