ljóð eftir megas

Eirab skipstjóri skutli sínum
skaut útá svartan sjá
stingurinn loptið með hvini klauf
svo komið varð auga vart á

móbí dikk um sæinn svam
með silalegri hægð
en í því sem þiggja eirabs gjöf
var engin dýrinu þægð

skutulinn hæfði hafsins borð
á hol gekk hann rán og unni
en vikið þá hafði sér hyldjúpsins burr
undan hárbreittri sendingunni