Hver er ekki hræddur?
Hver er ekki hræddur
við litla, dimma herbergið,
með litlu, daufu ljósaperunni,
hangandi niður í djúpt
myrkrið?
… öskrið bergmálar um litla,
dimma herbergið.
Einhver kveikir ljósið.

“Hættu þessu bölvaða bulli!
… ég er ekki hræddur við neitt…”

… afhverju titrar þá röddin þín?

- Kexi
_________________________________________________