Fyrir handan fjöllin sjö
búa dvergarnir sjö
bíða þín Mjallhvít
með sjö gráðuga munna
sjöfaldar kvartanir
ný gólf til að skúra.

Er ekki betra
að láta skera úr sér hjartað
en gráta sig lifandi
bíðandi
eftir einhverjum kóngsyni
sem hefur líf þitt
í hendi sér uppfrá því
í glerkistu
sofandi
svefni vanans.

Reyndu heldur
reyndu heldur
reyndu heldur við
veiðimanninn.

höf. Þórdís Richardsdóttir (1976)
G