Við erum vinir, tíminn og ég.
Hann sagði mér eitt sinn
að hann bíti ekki á mig.
En hvernig veit ég
hvort hann segir satt?
Jú, allt breytist,
nema ég.
Hið ljúfsára tif líðandi stundar
er sem hjóm í eyrum mínum.
Skuggar liðinna ára
sækja á mig
í svefni og vöku.
Með tíð og tíma
mun veröld mín
aðeins vera skuggar
og minningar liðinna alda.