hmm.. ég er bara í stuði…

hérna er eitt ljóð, var að læra fyrir próf… gleymdi mér smá og fór að krota.. well here it goes:

Ég veit við getum ekki verið saman
Ég veit við eigum enga von
Þó líður tíminn, þetta' er svo gaman
En þú átt þegar fyrir son

En augun segja eitthvað annað
Eitthvað sem þú hugsar nú
Ef þú gætir bara hug þinn kannað
ég bíð þín alltaf í von og trú

og ég hélt áfram að krota, og hérna er annað sem ég setti saman í dag (ég á eftir að falla á þessu prófi!!)

Finnst þér ekki furðulegt
fantanna verk
Berja, meiða og bíta
börnin önnur
Hlæja, klóra og hrinda
hæðast þegar niður kinn
tárin renna
-brenna

kveðja kvkhamlet