Leið alltaf eins og…

..Framlengingunni á líkama þínum.
Þessari einu sem að þú varst ósátt við.
Sama hvernig þú reyndir að breyta henni
hélt hún alltaf sinni upprunalegu mynd.

..Einu horninu í húsinu þínu.
Þessu eina sem alltaf var óhreint.
Sama hvernig þú reyndir að þrífa það
þá tókst það ekki.

..Glerbrotunum.
Þessum sem þú reyndir að líma saman
og móta úr þeim blómavasa.

Vasinn var ætlaður fyrir rósirnar
Þessar sem þú ræktaðir af ást.

Blómavasinn endaði sem stytta.
Þessi bæklaða af sjálfri mér
sem getur ekki haldið á rósum.