Svona bros
sáldrar hamingjufræjum
undir hjartarótum.

Svona orð
vekur gleðidagana
af blundi sínum.

Svona stund
skýtur djúpum rótum í
snjáðar minningar.