Fögnum rökkrinu
sem enn og aftur
leggur blessun sína
yfir okkur
á síðsumarskvöldum.
Birta daganna,
ljós náttanna,
vekur upp þorsta,
óstjórnlegan, óstöðvandi þorsta
sem aðeins tíminn
fær svalað
með miskunnsömu myrkri
á norðurhveli.
Jörðin og hennar dyntir
hafa okkar geð
í hendi sér.
Ofbirta fárra daga
í augu náttblindra afkvæma
skersins á norðurhjara
er mikið af því góða
- of mikið.
Við hörfum á vit svefns
og myrkra drauma.
Svífum um í alheimstóminu
rökkri mjúku og ró.