Árnadrápur Þetta fékk ég sent í e-maili og varð að deila þessu með ykkur hinum.


Árnadrápur


Ýmsu breytir öldin ný.
Er mig kanski að dreyma?
Nú er kominn kantsteinn í
kartöflugarðinn heima.


Hjálmar Freysteinsson


Lygum greindi fólki frá
fantur meina grófi
Fáir leyna andstyggð á
Árna steinaþjófi.


Gísli Ásgeirsson


Árni lokaleikinn vann
á lífsins peyjamóti:
Úr formennskunni fer nú hann
með fulla vasa af grjóti.


Þórarinn Eldjárn


Árni Johnsen eins og vant
ýmsan hneykslar sveininn,
er við flesta upp á kant
og ætti að fara í steininn.


Jón Ingvar Jónsson


Árni liðugt langa fingur
lætur renna um fé og glingur
hverskyns - nema hvað.
Ef hann bara ekki syngur
er mér sama um það.


Jón Ingvar Jónsson
G