Gráttu mig eigi,
þó ég bíði þess að þú komir frá sólinni
og kyssir mig,
faðmar mig og gefir mér heiminn.

Gráttu mig eigi,
þó ég standi hinum megin
við glerið og græt þig,
horfi á þig í fjarska
og kalla þögulli röddu
á þig sem ég þrái.

Gráttu mig eigi,
þó þú heyrir óm af minni rödd,
sjáir mína hönd leita þinnar
og tár mín falla vegna þín.

Gráttu mig eigi,
þó þú getir ekki stigið skrefin til mín
eða rétt mér þína hönd.
þó þú sveipir þig skikkju
og gangir burt.

Gráttu mig eigi
því ég elska þig.
G