ég mun aldrei
aftur
gefa þér
uppskriftina
að ástinni

því þú
mis-
notar
hana alltaf

notar hana í
skyndi-
kynni
eða
drullumall

eða að þú
mis-
skilur
hana
óviljandi
og klúðrar
málunum

þú verður
héðan
í
frá
að finna upp
þína eign
upp-
skrift

ég gefst upp