Óstyrkur fingur
teiknar mynd í rykið

mynd af mér

krabbameininu sem leitar lækningar
grasinu sem þarf að slá
kaflanum sem gleymdist að ljúka
áður en næsti hófst

með óstyrkum fingri
teiknar hann mynd af mér í rykið

og bíður óþreyjufullur
eftir sólarlagi gærdagsins