sólin sest
hrokafull
við sæinn

hrokafull
því hún veit
að hún er
ómissandi

máninn feiminn
tekur við
vaktinni

feiminn
þó hann viti
innst inni

að fyrir
rómantískar sálir
er hann
ómissandi