Hví eltist ég við menn sem
brjóta mig,
buga mig,
berja mig?

Á meðan þú
elskaðir mig,
unnir mér,
ei andmæltir mér?

Á meðan ég
hló að þér,
hæddi þig,
hunsaði þig.

Þá á móti þú
hjálpaðir mér,
hlúð' að mér
huggaðir mig.

Samt ég
stóð á þér,
skrökvað' að þér,
sparkaði þér.

Aðeins eitt get ég sagt um heimsku mína:
“Þeim var ég verst er unni mér mest”