Um loftin fýkur
óstaðfestur grunur
þess efnis
að í Reykjavík
blási vindar
ekki vegna loftslags
eða af öðrum
veðurfarslegum ástæðum
heldur af gömlum vana

og eins er það
með hjartaskömmina mína

það fýkur um huga minn
óstaðfestur grunur
þess efnis
að umrætt hjarta
hlusti eftir slættinum
í þínu hjarta
og lagi takt sinn að honum
ekki vegna ástar
eða af öðrum
tilfinningalegum ástæðum
heldur af gömlum vana