í gær

bjartur morgunroðinn hlær
í fölbláum klakaglugga

og þú

birtir mynd
af sjö ára stúlku - með fléttur
og forvitin augu - fingrum smáum teiknar hún
mynstur úr frostrósum

á kjallaraglugga