á hvejum degi
mæti ég gráum mönnum
með gráslegin hár á höfði
í gráum fötum, guggnir í framan

beygðir og bognir
bera þeir margra ára vonbrigði
á bakinu

ganga hægt upp og niður gráa stiga
í gráa húsinu þar sem ég vinn

sitja við skrifborð
hinu megin við ganginn

markaðir andvana vonum
langa daga strita við að segja nei

stórir draumar búa í næsta húsi
bara smáir hé