regnið bylur á rúðunni
með stanslausum err hljóðum

droparnir leika við ljósið
- úr fjarskanum

fanga það

hugfanginn horfi ég á

rákótt

doppótt

útsýnið

renna letilega niður glerið