Hér á jörðu er ekkert gefið
né með römmu afli tekið
- aðeins lánað.

Öllu því sem söfnum saman
og höfum af, bæði gleði og gaman
skiljum við að lokum eftir.

Minningarnar, kannski geymast
sem óljós ómur milli lífa, reynast
lífseigar í fylgsnum hugans.

Haltu þessu vísdómskorni,
að þér fast á hverjum morgni,
og lifðu eftir því.

Laurent/Keats 6.-8.8.2003,
www.simnet.is/shadow