í hausnum á mér hringsnýst núið
botna hvorki upp né niður
því heimurinn sjálfur
snýst svo hratt

dæmalaust er allt öfugsnúið
allt til fjandans fer, því miður
því heimurinn sjálfur
snýst svo hratt

í kringum þig örvinglaður
í kringum allt og alla
eins og heimurinn sjálfur
ég snýst og snýst

skaði þó verður, minn maður
endalok má það víst kalla
ef heimurinn sjálfur
hættir að snúast